Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Forstjóri Landhelgisgæslunnar fundar með yfirmanni fiskideildar FAO

16.5.2007

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, heimsótti FAO hinn 14. maí sl. Átti Georg fund með Ichiro Nomura, yfirmanni fiskideildarinnar, og kynnti sér starfsemi FAO.

Einkanlega var fjallað um fjareftirlitsverkefni, sem Gylfi Geirsson, starfsmaður Landhelgisgæslunnar, mun vinna að sem gestasérfræðingur innan FAO, m. a. að spurningalista fyrir aðildarríki um fjareftirlit með skipum og úrvinnsla úr svörum, kynningu á fjareftirliti í ýmsum deildum stofnunarinnar, kynning á eftirliti innan NEAFC í sambandi við IUU. Þá mun hann einnig vinna að skýrslu um það, hvernig nota má fjareftirlitskerfi Landhelgisgæslunnar með skipum í öðrum gagnabönkum.

Á fundum Georgs var einnig rætt um aðra möguleika í þjálfun með fjareftirlit, en mikil þörf er á slíkri þjónustu, m. a. í þróunarríkjunum, sem eru skammt á veg komin í þessum efnum. Mikill áhugi er á því innan FAO að kanna framtíðarsamstarf við íslenska aðila á þessu sviði.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: