Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, ræðir um framlag FAO til fiskveiða á alþjóðlegri ráðstefnu í Háskólanum á Akureyri
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, flutti ávarp við opnun ráðstefnu um viðskipti með fisk og helstu tækifæri og áskoranir í þessum viðskiptum, sem haldin var í Háskólanum á Akureyri 1. - 2. febrúar 2007.
Þar ræddi hún meðal annars mikilvægi sjávarútvegs fyrir Íslendinga og framlag Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) til þróunar á alþjóðlegum stöðlum um sjálfbærar veiðar og ábyrg fiskviðskipti. Sagði hún einnig, að Háskólinn á Akureyri hefði alla burði til að verða alþjóðleg miðstöð fyrir þekkingarmiðlun í fiskviðskiptum.
Ráðstefnan, sem fleiri en 80 sérfræðingar og embættismenn víða að sóttu, fjallaði um þær miklu breytingar á viðskiptaumhverfinu í heiminum sem orðið hafa síðustu ár, einkanlega með tilliti til viðskipta með sjávarafurðir. Verðmæti þeirra er nú metið á um 400 milljarða bandarískra dollara (USD). Sífellt koma nýir aðilar til leiks og hafa Kínverjar á fáum árum orðið leiðandi í inn- og útflutningi á fiski og helstu framleiðendur eldisfiskjar. Ýmsar nýjar aðstæður og vandamál hafa skapst með aukinni þýðingu eldisfiskjar í þessum viðskiptum, til dæmis hvað varðar heilbrigði vörunnar og eftirlit með umhverfisþáttum. Þessar aðstæður krefjast aukinnar samvinnu hins opinbera jafnt og einkageirans og kalla á gagnsæjar viðmiðunarreglur um ýmsa þætti fiskviðskipta.
Viðskipti með sjávarafurðir eru reglulega til umfjöllunar hjá FAO, einkanlega í fiskinefnd stofnunarinnar og undirnefnd hennar um viðskipti með fisk. Gerðu fulltrúar stofnunarinnar grein fyrir stöðunni í þessum viðskiptum, aðkomu FAO sem þekkingarbanka að umræðunni um ríkisstyrki í sjávarútvegi og stöðu umræðunnar innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) hvað fisk varðar.
Ráðstefnan var gagnlegt og upplýsandi innlegg í þessa umræðu. Ljóst er að viðskipti með fisk fara ört vaxandi samhliða aukinni þýðingu þeirra fyrir fæðuöryggið í heiminum. Er því mikil nauðsyn á lifandi umræðu með aðkomu hagsmunaaðila úr ýmsum áttum. FAO hefur um langt skeið verið helsti þekkingarbanki á þessu sviði og telja íslensk stjórnvöld stofnunina vera rétta vettvanginn fyrir umræður um þau sjávarútvegsmál sem hafa hnattræna vídd.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra flutti lokaorð á ráðstefnunni og lagði í þeim áherslu á þörfina á frjálsari verslun, sem væri í allra hag, enda væru viðskipti með fisk mikilvæg fyrir vöxt efnahagslífsins.
Af hálfu utanríkisráðuneytisins sóttu fundinn auk ráðherra, Guðni Bragason fastafulltrúi Íslands við FAO, WFP og IFAD, Benedikt Jónsson sendiherra og Heiðrún Pálsdóttir sendiráðsritari.






