Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið hyggur á aukin umsvif

19.5.2007

Áhugi á frekara samstarfi
Gott samstarf hefur tekist með sendiráðinu og ítalsk-íslenska verslunarráðinu og er nú unnið að því að halda aðalfund ráðsins á Ítalíu í vetur. Sú vinna er einnig unnin í samvinnu við Viðskiptaþjónustu ráðuneytisins. Formaður verslunarráðsins er Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Töluverður áhugi kom fram um eflingu ráðsins á viðskiptafundi á vegum ráðsins í Reykjavík 18. maí síðastliðinn. Þátttakendur voru frá fyrirtækjum, sem áhuga hafa á viðskiptum við Ítalíu, og öðrum aðilum sem tengjast Ítalíu. Utanríkisráðherra flutti ávarp og sendiherra Ítalíu á Íslandi, frú Anna Rosa Coniglio, var viðstödd.

Ítalskir dagar
Um svipað leyti voru haldnir ítalskir dagar í stórmörkuðum Hagkaupa, þar sem kynntar voru matvörur, innfluttar frá Ítalíu undir nýju vörumerki þeirra, Italia. Vörurnar koma aðallega frá Toskanahéraði. Átta blaðsíðna auglýsinga- og upplýsingabæklingi var dreift á öll heimili í Reykjavík og Akureyri. Þá stóð veitingahúsið La Primavera í Austurstræti fyrir ítalskri viku og var matreiðslumaður fenginn frá Ítalíu. Ítalskir gestir á viðskiptafundinum heimsóttu síðan fyrirtæki í Reykjavík, sem eru í viðskiptum við Ítalíu.

Aukin áhugi íslenskra fyrirtækja á Ítalíu
Viðskiptafundurinn og ítölsku dagarnir voru gott tækifæri til að vekja athygli á starfsemi ráðsins, viðskiptamöguleikum milli landanna og til að hvetja fleiri fyrirtæki til að gerast félagar í ráðinu. Ýmis merki eru nú um aukinn áhuga íslenskra fyrirtækja á Ítalíu. Eimskip opnuðu aðra skrifstofu sína á Ítalíu í vor, nánar tiltekið í Genúa, en fyrir er það með skrifstofu í Mílanó. Er þetta liður í því að styrkja enn frekar stöðu félagsins á ítalska markaðnum. Þess má einnig geta, að Kepler Equities SA, sem Landsbankinn eignaðist fyrir tæpum tveimur árum, er með starfsemi í Mílanó.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: