Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Norrænn fundur með framkvæmdastjóra WFP

26.4.2006

Hinn 26. apríl var haldinn í Osló fundur James Morris, aðalframkvæmdastjóra WFP, og Norðurlandanna, Belgíu, Bretlands, Hollands, Kanada, Sviss og Þýskalands og sótti Guðni Bragason fastafulltrúi í Róm fundinn fyrir Íslands hönd. Fundur af þessu tagi var síðast haldinn á Íslandi, en þá aðeins með þátttöku Norðurlandanna. Rætt var um ýmis mikilvæg málefni, sem varða stjórn og stefnumörkun og virkni WFP, m. a. stöðu stofnunarinnar innan umbótaviðleitninnar hjá Sameinuðu þjóðunum, klasamynstrið, mannúðarframlög, aðgengi að fæðuaðstoð og forgangsröðun, framtíðarútlit hvað varðar aðföng WFP og uppbyggingu sjálfsbjargargetu í samstarfsríkjum WFP.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: