Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Mr. Guðni Bragason, Permanent Representative, and James T. Morris, Executive Director of WFP
Mr. Guðni Bragason, Permanent Representative, and James T. Morris, Executive Director of WFP

Framlag Íslands til WFP

14.8.2006

10. júlí 2006: Aðstoð við Austur-Tímor:

Hinn 10. júlí ákvað ríkisstjórn Íslands að veita 7,5 milljónum kr. til stuðnings við hjálparstarf matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) til aðstoðar íbúum á Austur-Tímor.


Vorið 2006: Íslendingur til starfa á vegum WFP

Samstarfssamningur (Stand-by Agreement) milli Íslensku friðargæslunnar og WFP gerir það mögulegt að senda starfsmenn af viðbragðslista Friðargæslunnar til starfa á svæðum, þar sem neyðarástand er. Þorbjörn Jónsson sendiráðunautur í skrifstofu friðargæslunnar og Guðni Bragason fastafulltrúi sóttu fund 8.-9. desember hjá WFP í Róm, til að ræða aukið samstarf. Í kjölfar þess var gengið frá því að tveir Íslendingar, Eldar Ástþórsson og Glúmur Baldvinsson færu til þjálfunar í birgðastöð WFP í Bari á Ítalíu. Glúmur fór síðan til starfa um mánaðartíma í Tanzaníu. Þá hefur Ilías Karl Moustakas starfað um nokkurra mánaða tíma í Líberíu innan ramma Samstarfssamningsins.



20.12. 2005: Aðstoð við Malawi:



Ríkisstjórnin ákvað í desember 2005 að styrkja starf WFP í þágu hungraðra í Malawi með ISK sex milljónum (um $95,000,-)


11. október 2005: Aðstoð við Pakistan:

Hinn 11. október ákvað ríkisstjórnin að veita til mannúðar- og neyðaraðstoðar í Pakistan 300.000 Bandaríkjadalir, sem verður á skipt milli verkefna eftirfarandi stofnana: Rauði Kross Íslands 150.000, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) 75.000 og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) – 75.000.



31. ágúst 2005: Fundur fastafulltrúa með framkvæmdastjóra WFP.

Guðni Bragason fastafulltrúi átti hinn 31. ágúst fund með James T. Morris, framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Róm. Matvælaáætlunin er stærsta hjálparstofnun í heimi og kemur matvælum á hverju ári til 90 miljón manns, þar af 56 miljónum barna, í 80 löndum. Fastafulltrúi bar framkvæmdastjóranum kveðju utanríkisráðherra og upplýsti um aukin framlög íslenskra stjórnvalda til þróunarsamvinnu og neyðaraðstoðar og vilja þeirra, til að styðja starf WFP. Minntist hann m. a. á aðstoð við fórnarlömb flóðbylgjunnar miklu á Indlandshafi og aðstoð við skólamáltíðaverkefni fyrir stúlkur í Írak. Íslensk stjórnvöld höfðu áður veitt fé til verkefna WFP í Haítí, Írak og Súdan. Fastafulltrúi ræddi einnig samstarfssamning Íslensku friðargæslunnar og WFP (Stand-by Agreement) og sagði Íslendinga áhugasama um að leggja til heppilega starfsmenn í verkefni WFP.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: