Vefsetur Fastanefndar opnað
Vefsetur Fastanefndar Íslands í Róm (www.iceland.org/it) var opnað í dag. Á vefsetrinu er að finna gagnlegar upplýsingar um starfsemi fastanefndarinnar sem hefur fyrirsvar gagnvart þremur stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm, Matvæla- og landbúnaðarstofnuninni (FAO), Matvælaáætluninni (WFP) og Alþjóðasjóði fyrir þróun landbúnaðar (IFAD). Einnig eru þar stutt yfirlit yfir samskipti Ísland og stofnananna þriggja og auk þess gagnlegir veftenglar til stofnana sem sinna málum er varða starfsemi þeirra. Auk upplýsinga um málefni sem snerta starfsemi fastanefndarinnar hefur vefsetrið ennfremur að geyma víðtækar, almennar upplýsingar á ensku um Ísland, land og þjóð, auk hundruða tengla í sértækar upplýsingasíður.






