Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu ræddu m.a. mikilvægi þess að fullgilda tvísköttunarsamning landanna á fundi sem þau áttu í Róm í dag. Kvaðst Frattini myndu beita sér fyrir fullgildingu samningsins en Íslendingar hafa þegar fullgilt hann.
>>>
Hátt í hundrað manns sátu íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í ráðhúsi Mílanóborgar, Palazzo Marino, hinn 26. maí sl., sem skipulögð var af sendiráði Íslands í Róm og Íslensk-ítalska viðskiptaráðinu (IICC) í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Borgarstjórinn í Mílanó, frú Letizia Moratti, ávarpaði fundinn, og Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.
>>>
Stuttmynda- og heimildamyndahátíðin TekFestival fór fram í Róm nýverið. Á henni voru meðal annars sýndar tvær íslenskar myndir, 'Anna and the moods' eftir Gunnar Karlsson og 'Wrestling' eftir Grím Hákonarson.
>>>
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið aukaframlag til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) sem nemur um hálfri milljón Bandaríkjadala, eða um 37 milljónum ísl. kr. í kjölfar neyðarkalls stofnunarinnar. Á Matvælaátætlun SÞ í alvarlegum fjárhagserfiðleikum vegna gífurlegra hækkana sem orðið hafa á matvæla- og eldsneytisverði að undanförnu.
>>>
Ítalska Aurelio Peccei-stofnunin (Fondazione Aurelio Peccei) hefur veitt Reykjavíkurborg og Yoko Ono listakonu viðurkenningu fyrir Friðarsúluna i Viðey, "Imagine Peace Tower". Aðili að viðurkenningunni er einnig umhverfisverndarsamtökin L´eta Verde.
>>>
Sendiráð Íslands í Róm og Íslensk-ítalska viðskiptaráðið (IICC) halda íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í Palazzo Marino í Mílanó hinn 26. maí 2008, í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Dagsetningin er valin í tengslum við fyrsta beina flug Icelandair til Mílanó í ár hinn 24. maí. Borgarstjórinn í Mílanó, frú Letizia Moratti, mun ávarpa fundinn sem og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
>>>
Sendiráð Íslands í Róm og Íslensk-ítalska verslunarráðið (ÍTÍS) ráðgera að halda íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í Mílanó hinn 26. maí 2008, í samvinnu við ýmsa aðila og stofnanir, þ. m. t. viðskiptaráðið í Mílanó. Dagsetningin er valin í tengslum við fyrsta beina flug Icelandair til Mílanó í ár.
>>>
Kynjamálefni og loftslagsbreytingar voru viðgangsefni fundar Matvæla og landbúnaðarstofnunar S. þ. (FAO) 10. mars sl. í Róm, sem haldinn var í tengslum við hinn alþjóðlega kvennadag 8. mars, í samvinnu við Alþjóðasjóð um þróun landbúnaðar (IFAD).
>>>
Lennart Baage forseti IFAD bauð Þórunni Sveinbjarnardóttur og íslensku sendinefndinni til hádegisverðarfundar í höfuðstöðvum IFAD, þar sem umhverfismál voru meðal annars rædd. Af hálfu IFAD sátu fundinn einnig Matthew Wyatt, varaforseti í utanaðkomandi málum, Gunilla Olson, umsjónarmaður stefnuskrár IFAD, Annina Lubbock og Maria Hartl, sérfræðingar í kynjamálum og Sheila Mwanundu, sérfræðingur í umhverfismálum.
>>>
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra heimsótti Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og átti fund með Susana Malcorra varaframkvæmdastjóra WFP, í fjarveru Josette Sheeran framkvæmdastjóra. Fundinn sat einnig Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands hjá WFP. WFP er stærsta neyðaraðstoðarstofnun í heimi. Ísland hefur lagt fram verulegt fé til neyðaraðstoðar WFP á liðnum árum og ennfremur til skólamáltíðaverkefnis hennar. Virkur er einnig viðbragðssamningur WFP og Íslensku friðargsælunnar, sem býður upp á góða þjálfun fyrir fólk af viðbragðslista friðargæslunnar.
>>>
Á dögunum var haldin BIT-ferðamálasýningin í Mílanó á Ítalíu og var á henni sterk íslensk viðvera. Ferðamálastofa var viðstödd og þá var íslenska ferðaskrifstofan Island Tours einnig með bás á sýningunni.
>>>
Fastanefnd Íslands í Róm annast í ár norræna samræmingu um málefni Alþjóðasjóðs fyrir þróun landbúnaðar (IFAD). Guðni Bragason fastafulltrúi flutti á aðalfundi sjóðsins 13. – 14. febrúar ávarp fyrir hönd Norðurlandanna og sagði m. a., að afmæli sjóðsins gæfi aðildarríkjum tækifæri til að vega og meta stöðu og stefnu hans.
>>>