Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Fréttir og ræður

Arnaldur Arnarson gítarleikari

30.11.2007 : Tónleikum Arnaldar Arnarsonar gítarleikara vel tekið

Arnaldur Arnarson, gítarleikari, hélt á dögunum tónleika í basiliku Heilagrar Agnesar (Basilica di Sant'Agnese in Agone) við Piazza Navona í Róm. Tónleikarnir voru haldnir með samvinnu sendiráðs Íslands í Róm og félagsins Musica a Piazza Navona. Skemmst er frá því að segja að tónleikarnir tókust mjög vel og voru gríðarvel sóttir. >>>
 

27.11.2007 : Ráðsfundir Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) haldnir í tengslum við 34. aðalfundinn

Í tengslum við aðalfundinn voru haldnir tveir fundir í FAO-ráðinu. Hinn fyrri, 133. ráðsfundurinn var haldinn dagana 14. – 16. nóvember sl. og hinn síðari, 134. fundurinn, 26. nóvember. Í ráðinu sitja fulltrúar 49 ríkja, yfirleitt fastafulltrúar aðildarríkja í Róm. Ráðið undirbýr m. a. tillögur, sem lagðar eru fyrir aðalfundi FAO. Fjölmörg mál voru tekin fyrir á þeim þremur dögum sem ráðið fundaði. >>>
 
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna

25.11.2007 : 34. aðalfundur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna haldinn í Róm

Þrítugasti og fjórði aðalfundur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) var haldinn 17. – 24. nóvember sl. í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Róm. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var aðalfulltrúi Íslands. >>>
 
Færeyjar fá inngöngu í FAO

23.11.2007 : Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, leggur áherslu á sjávarútvegs- og þróunarmál hjá FAO og fagnar inngöngu Færeyja

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hélt ræðu fyrir Íslands hönd á 34. aðalfundar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna þriðjudaginn 20. nóvember. Í upphafi ræðu sinnar bauð Einar Færeyinga sérstaklega velkomna, en aukaaðild Færeyja að FAO var staðfest í upphafi aðalfundarins. >>>
 

21.11.2007 : Norrænt ávarp um jafnrétti og þróun á 34. aðalfundi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna

Á 34. aðalfundi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, var flutt sameiginleg norræn ræða um nýja stöðuskýrslu um framkvæmd áætlunar FAO um jafnrétti og þróun. Í ávarpinu sagði m. a., að FAO gæti þá aðeins náð markmiðum sínu í baráttunni gegn hungri í heiminum, ef þróunaráætlanir væru byggðar á jafnrétti kynjanna. >>>
 
Frá opnun íslenska sýningarbássins á orkuþinginu.

15.11.2007 : Íslensk fyrirtæki taka þátt í 20. heimsþingi Alþjóðaorkuráðsins sem haldið var í Róm

Hátt í 40 forsvarsmenn og -konur íslenska orkugeirans tóku þátt í 20. heimsþingi Alþjóðaorkuráðsins (World Energy Council, WEC), sem var haldið í hinni nýju og glæsilegu ráðstefnumiðstöð Fiera di Roma 11. - 15. nóvember sl. undir yfirskriftinni “Framtíð orkumála í samofnum heimi”. >>>
 
Geir H. Haarde ásamt David Harcharick, varaframkvæmdastjóra FAO

30.10.2007 : Heimsókn Geirs H. Haarde forsætisráðherra til Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO)

Geir H. Haarde forsætisráðherra og fylgdarlið hans heimsóttu Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) 26. október. Á móti þeim tók David Harcharik, varaframkvæmdastjóri stofnunarinnar í fjarveru dr. Jacques Diouf aðalframkvæmdastjóra. Forsætisráðherra sat upplýsingafund í fiskideild stofnunarinnar í boði forstöðumanns hennar, Ichiro Nomura. >>>
 
Emma Bonino, utanríkisviðskiptaráðherra Ítalíu, og Geir H. Haarde, forsætisráðherra

29.10.2007 : Samstarfshópur um eflingu viðskipta milli Ítalíu og Íslands stofnaður

Á ársfundi Íslensk-ítalska viðskiptaráðsins 26. október greindu Geir H. Haarde forsætisráðherra og Emma Bonino utanríkisviðskiptaráðherra frá því, að ákveðið hefði verið að stofna sérstakan samstarfshóp (task-force), sem ætlað yrði að greina með hvaða hætti væri hægt að efla enn frekar viðskiptatengsl á milli Íslands og Ítalíu. >>>
 
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu

26.10.2007 : Geir H. Haarde forsætisráðherra fundar með Romano Prodi, ítalska starfsbróður sínum

Geir H. Haarde forsætisráðherra átti fund með hinum ítalska starfsbróður sínum, Romano Prodi 26. október. Ræddu forsætisráðherrarnir m. a. um fullgildingu tvísköttunarsamnings ríkjanna, hugsanlega stofnun ítalsks sendiráðs í Reykjavík, ákvörðun íslenskra stjórnvalda um stuðning við íslenskukennslu í La Sapienza-háskólanum í Róm og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. >>>
 

26.10.2007 : Fjárfestingarstofa Íslands og sendiráð Íslands í Róm halda kynningarfund um fjárfestingarmöguleika á Íslandi.

Í tengslum við ársfund Íslensk-ítalska verslunarráðsins í Róm hinn 26. október stóð sendiráðiðið og Fjárfestingarstofa Íslands fyrir kynningarfundi um fjárfestingarmöguleika og viðskiptaumhverfið á Íslandi. Kristinn Hafliðason, starfsmaður Fjárfestingarstofu, hélt erindi og Guðni Bragason sendifulltrúi í Róm flutti inngangsorð. >>>
 

26.10.2007 : Ársfundur ítalska-íslenska viðskiptaráðsins í Róm

Hinn 26. október var Geir H. Haarde forsætisráðherra aðalræðumaður af Íslands hálfu á hádegisverðarfundi íslensk-ítalska viðskiptaráðsins sem fram fór í Róm. Af hálfu Ítalíu ávarpaði fundinn Emma Bonino utanríkisviðskiptaráðherra Ítalíu. Fundinn sátu hátt í 100 manns úr stjórnmálum, viðskiptum, mennta- og menningarmálum á Ítalíu og Íslandi. >>>
 

8.10.2007 : Lífleg íslensk menningarstarfsemi í Norræna listamannasetrinu í Róm í september

Valgerður Þórsdóttir við leiklestur á verkum sínumÍ september mánuði hefur íslensk menning verið kynnt þrjú kvöld í Norræna listamannasetrinu í Rómarborg, Circolo Scandinavo. Voru kynningarnar vel sóttar. Tónskáldið Steingrímur Rohloff kynnti tónsmíðar sínar, leikritaskáldið Valgerður Þórsdóttir las úr verkum sínum og verk gjörningahópsins "The Icelandic Love Corporation" var sýnt á mynbandalistakvöldi. >>>
 

5.10.2007 : Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið heldur hádegisverðarfund í Róm

Ítalsk-íslenska viðskiptaráðiðÍtalsk-íslenska viðskiptaráðið heldur hádegisverðarfund í Róm föstudaginn 26. október. Efni fundarins er samband Íslands og Ítalíu en yfirskrift fundarins er "Italy and Iceland: discovering new opportunities". Fundurinn er skipulagður af ítalsk-íslenska viðskiptaráðinu í samvinnu við íslenska sendiráðið í Róm auk nokkurra bakhjarla. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Emma Bonino, utanríkisviðskipta- og Evrópumálaráðherra Ítalíu, munu flytja þar erindi. >>>
 

21.8.2007 : Jónas Haraldsson nýr starfsmaður fastanefndar

Jónas HaraldssonÞann 15. ágúst síðastliðinn hóf Jónas Haraldsson tímabundið starf við fastanefndina. Hann vann áður sem fréttamaður á Vísi, Bylgjunni og Stöð tvö. Hann hefur einnig kennt sögu og stjórnmál Afríku við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands. >>>
 

5.7.2007 : Starfsmaður Landhelgisgæslunnar starfar tímabundið sem gestasérfræðingur í fiskideild Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO)

Fv: Gylfi Geirsson, gestasérfræðingur hjá FAO, Georg Kr.Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Guðni Bragason fastafulltrúi.Starfsmaður Landhelgisgæslunnar, Gylfi Geirsson, starfar nú tímabundið sem gestasérfræðingur í fiskideild Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) á vegum utanríkisráðuneytisins og mun vinna að verkefnum tengdum fjareftirliti með skipum og rafrænum afladagbókum. Á alþjóðavettvangi hefur Ísland getið sér orð fyrir að vera í fremstu röð á þesu sviði. Verkefnið er unnið í samvinnu sjávarútvegsráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslunnar. >>>
 

10.6.2007 : Ávarp við opnun sýningar Steingríms Eyfjörð á Feneyjatvíæringnum 2007

Steingrímur Eyfjörð var sá íslenski listamaður sem kom fram á Feneyjatvíæringnum árið 2007. Guðni Bragason, fastafulltrúi, hélt erindi fyrir hönd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, þegar sýning Steingríms var opnuð. Hérna er hægt að lesa erindið í fullri lengd (á ensku). >>>
 

5.6.2007 : Ávarp Íslands við árlegan fund framkvæmdastjórnar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna

Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands hjá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP), flutti ávarp fyrir hönd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, á árlegum fundi framkvæmdastjórnar WFP. Hægt er að lesa ávarpið í fullri lengd hér á síðunni (ensku). >>>
 

19.5.2007 : Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið hyggur á aukin umsvif

Gott samstarf hefur tekist með sendiráðinu og ítalsk-íslenska verslunarráðinu og er nú unnið að því að halda aðalfund ráðsins á Ítalíu í vetur. Sú vinna er einnig unnin í samvinnu við Viðskiptaþjónustu ráðuneytisins. Formaður verslunarráðsins er Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). >>>
 

16.5.2007 : Forstjóri Landhelgisgæslunnar fundar með yfirmanni fiskideildar FAO

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, heimsótti FAO hinn 14. maí sl. Átti Georg fund með Ichiro Nomura, yfirmanni fiskideildarinnar, og kynnti sér starfsemi FAO. >>>
 

5.2.2007 : Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, ræðir um framlag FAO til fiskveiða á alþjóðlegri ráðstefnu í Háskólanum á Akureyri

Valgerður SverrisdóttirValgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, flutti ávarp við opnun ráðstefnu um viðskipti með fisk og helstu tækifæri og áskoranir í þessum viðskiptum, sem haldin var í Háskólanum á Akureyri 1. - 2. febrúar 2007. >>>
 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: