Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu ræddu m.a. mikilvægi þess að fullgilda tvísköttunarsamning landanna á fundi sem þau áttu í Róm í dag. Kvaðst Frattini myndu beita sér fyrir fullgildingu samningsins en Íslendingar hafa þegar fullgilt hann.
>>>
Hátt í hundrað manns sátu íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í ráðhúsi Mílanóborgar, Palazzo Marino, hinn 26. maí sl., sem skipulögð var af sendiráði Íslands í Róm og Íslensk-ítalska viðskiptaráðinu (IICC) í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Borgarstjórinn í Mílanó, frú Letizia Moratti, ávarpaði fundinn, og Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.
>>>
Stuttmynda- og heimildamyndahátíðin TekFestival fór fram í Róm nýverið. Á henni voru meðal annars sýndar tvær íslenskar myndir, 'Anna and the moods' eftir Gunnar Karlsson og 'Wrestling' eftir Grím Hákonarson.
>>>
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið aukaframlag til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) sem nemur um hálfri milljón Bandaríkjadala, eða um 37 milljónum ísl. kr. í kjölfar neyðarkalls stofnunarinnar. Á Matvælaátætlun SÞ í alvarlegum fjárhagserfiðleikum vegna gífurlegra hækkana sem orðið hafa á matvæla- og eldsneytisverði að undanförnu.
>>>
Ítalska Aurelio Peccei-stofnunin (Fondazione Aurelio Peccei) hefur veitt Reykjavíkurborg og Yoko Ono listakonu viðurkenningu fyrir Friðarsúluna i Viðey, "Imagine Peace Tower". Aðili að viðurkenningunni er einnig umhverfisverndarsamtökin L´eta Verde.
>>>
Sendiráð Íslands í Róm og Íslensk-ítalska viðskiptaráðið (IICC) halda íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í Palazzo Marino í Mílanó hinn 26. maí 2008, í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Dagsetningin er valin í tengslum við fyrsta beina flug Icelandair til Mílanó í ár hinn 24. maí. Borgarstjórinn í Mílanó, frú Letizia Moratti, mun ávarpa fundinn sem og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
>>>
Sendiráð Íslands í Róm og Íslensk-ítalska verslunarráðið (ÍTÍS) ráðgera að halda íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í Mílanó hinn 26. maí 2008, í samvinnu við ýmsa aðila og stofnanir, þ. m. t. viðskiptaráðið í Mílanó. Dagsetningin er valin í tengslum við fyrsta beina flug Icelandair til Mílanó í ár.
>>>
Kynjamálefni og loftslagsbreytingar voru viðgangsefni fundar Matvæla og landbúnaðarstofnunar S. þ. (FAO) 10. mars sl. í Róm, sem haldinn var í tengslum við hinn alþjóðlega kvennadag 8. mars, í samvinnu við Alþjóðasjóð um þróun landbúnaðar (IFAD).
>>>
Lennart Baage forseti IFAD bauð Þórunni Sveinbjarnardóttur og íslensku sendinefndinni til hádegisverðarfundar í höfuðstöðvum IFAD, þar sem umhverfismál voru meðal annars rædd. Af hálfu IFAD sátu fundinn einnig Matthew Wyatt, varaforseti í utanaðkomandi málum, Gunilla Olson, umsjónarmaður stefnuskrár IFAD, Annina Lubbock og Maria Hartl, sérfræðingar í kynjamálum og Sheila Mwanundu, sérfræðingur í umhverfismálum.
>>>
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra heimsótti Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og átti fund með Susana Malcorra varaframkvæmdastjóra WFP, í fjarveru Josette Sheeran framkvæmdastjóra. Fundinn sat einnig Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands hjá WFP. WFP er stærsta neyðaraðstoðarstofnun í heimi. Ísland hefur lagt fram verulegt fé til neyðaraðstoðar WFP á liðnum árum og ennfremur til skólamáltíðaverkefnis hennar. Virkur er einnig viðbragðssamningur WFP og Íslensku friðargsælunnar, sem býður upp á góða þjálfun fyrir fólk af viðbragðslista friðargæslunnar.
>>>
Á dögunum var haldin BIT-ferðamálasýningin í Mílanó á Ítalíu og var á henni sterk íslensk viðvera. Ferðamálastofa var viðstödd og þá var íslenska ferðaskrifstofan Island Tours einnig með bás á sýningunni.
>>>
Fastanefnd Íslands í Róm annast í ár norræna samræmingu um málefni Alþjóðasjóðs fyrir þróun landbúnaðar (IFAD). Guðni Bragason fastafulltrúi flutti á aðalfundi sjóðsins 13. – 14. febrúar ávarp fyrir hönd Norðurlandanna og sagði m. a., að afmæli sjóðsins gæfi aðildarríkjum tækifæri til að vega og meta stöðu og stefnu hans.
>>>
Arnaldur Arnarson, gítarleikari, hélt á dögunum tónleika í basiliku Heilagrar Agnesar (Basilica di Sant'Agnese in Agone) við Piazza Navona í Róm. Tónleikarnir voru haldnir með samvinnu sendiráðs Íslands í Róm og félagsins Musica a Piazza Navona. Skemmst er frá því að segja að tónleikarnir tókust mjög vel og voru gríðarvel sóttir.
>>>
Í tengslum við aðalfundinn voru haldnir tveir fundir í FAO-ráðinu. Hinn fyrri, 133. ráðsfundurinn var haldinn dagana 14. – 16. nóvember sl. og hinn síðari, 134. fundurinn, 26. nóvember. Í ráðinu sitja fulltrúar 49 ríkja, yfirleitt fastafulltrúar aðildarríkja í Róm. Ráðið undirbýr m. a. tillögur, sem lagðar eru fyrir aðalfundi FAO. Fjölmörg mál voru tekin fyrir á þeim þremur dögum sem ráðið fundaði.
>>>
Þrítugasti og fjórði aðalfundur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) var haldinn 17. – 24. nóvember sl. í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Róm. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var aðalfulltrúi Íslands.
>>>
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hélt ræðu fyrir Íslands hönd á 34. aðalfundar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna þriðjudaginn 20. nóvember. Í upphafi ræðu sinnar bauð Einar Færeyinga sérstaklega velkomna, en aukaaðild Færeyja að FAO var staðfest í upphafi aðalfundarins.
>>>
Á 34. aðalfundi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, var flutt sameiginleg norræn ræða um nýja stöðuskýrslu um framkvæmd áætlunar FAO um jafnrétti og þróun. Í ávarpinu sagði m. a., að FAO gæti þá aðeins náð markmiðum sínu í baráttunni gegn hungri í heiminum, ef þróunaráætlanir væru byggðar á jafnrétti kynjanna.
>>>
Hátt í 40 forsvarsmenn og -konur íslenska orkugeirans tóku þátt í 20. heimsþingi Alþjóðaorkuráðsins (World Energy Council, WEC), sem var haldið í hinni nýju og glæsilegu ráðstefnumiðstöð Fiera di Roma 11. - 15. nóvember sl. undir yfirskriftinni “Framtíð orkumála í samofnum heimi”.
>>>
Geir H. Haarde forsætisráðherra og fylgdarlið hans heimsóttu Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) 26. október. Á móti þeim tók David Harcharik, varaframkvæmdastjóri stofnunarinnar í fjarveru dr. Jacques Diouf aðalframkvæmdastjóra. Forsætisráðherra sat upplýsingafund í fiskideild stofnunarinnar í boði forstöðumanns hennar, Ichiro Nomura.
>>>
Á ársfundi Íslensk-ítalska viðskiptaráðsins 26. október greindu Geir H. Haarde forsætisráðherra og Emma Bonino utanríkisviðskiptaráðherra frá því, að ákveðið hefði verið að stofna sérstakan samstarfshóp (task-force), sem ætlað yrði að greina með hvaða hætti væri hægt að efla enn frekar viðskiptatengsl á milli Íslands og Ítalíu.
>>>
Geir H. Haarde forsætisráðherra átti fund með hinum ítalska starfsbróður sínum, Romano Prodi 26. október. Ræddu forsætisráðherrarnir m. a. um fullgildingu tvísköttunarsamnings ríkjanna, hugsanlega stofnun ítalsks sendiráðs í Reykjavík, ákvörðun íslenskra stjórnvalda um stuðning við íslenskukennslu í La Sapienza-háskólanum í Róm og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.>>>
Í tengslum við ársfund Íslensk-ítalska verslunarráðsins í Róm hinn 26. október stóð sendiráðiðið og Fjárfestingarstofa Íslands fyrir kynningarfundi um fjárfestingarmöguleika og viðskiptaumhverfið á Íslandi. Kristinn Hafliðason, starfsmaður Fjárfestingarstofu, hélt erindi og Guðni Bragason sendifulltrúi í Róm flutti inngangsorð.
>>>
Hinn 26. október var Geir H. Haarde forsætisráðherra aðalræðumaður af Íslands hálfu á hádegisverðarfundi íslensk-ítalska viðskiptaráðsins sem fram fór í Róm. Af hálfu Ítalíu ávarpaði fundinn Emma Bonino utanríkisviðskiptaráðherra Ítalíu. Fundinn sátu hátt í 100 manns úr stjórnmálum, viðskiptum, mennta- og menningarmálum á Ítalíu og Íslandi.>>>
Í september mánuði hefur íslensk menning verið kynnt þrjú kvöld í Norræna listamannasetrinu í Rómarborg, Circolo Scandinavo. Voru kynningarnar vel sóttar. Tónskáldið Steingrímur Rohloff kynnti tónsmíðar sínar, leikritaskáldið Valgerður Þórsdóttir las úr verkum sínum og verk gjörningahópsins "The Icelandic Love Corporation" var sýnt á mynbandalistakvöldi.
>>>
Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið heldur hádegisverðarfund í Róm föstudaginn 26. október. Efni fundarins er samband Íslands og Ítalíu en yfirskrift fundarins er "Italy and Iceland: discovering new opportunities". Fundurinn er skipulagður af ítalsk-íslenska viðskiptaráðinu í samvinnu við íslenska sendiráðið í Róm auk nokkurra bakhjarla. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Emma Bonino, utanríkisviðskipta- og Evrópumálaráðherra Ítalíu, munu flytja þar erindi.
>>>
Þann 15. ágúst síðastliðinn hóf Jónas Haraldsson tímabundið starf við fastanefndina. Hann vann áður sem fréttamaður á Vísi, Bylgjunni og Stöð tvö. Hann hefur einnig kennt sögu og stjórnmál Afríku við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands.
>>>
Starfsmaður Landhelgisgæslunnar, Gylfi Geirsson, starfar nú tímabundið sem gestasérfræðingur í fiskideild Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) á vegum utanríkisráðuneytisins og mun vinna að verkefnum tengdum fjareftirliti með skipum og rafrænum afladagbókum. Á alþjóðavettvangi hefur Ísland getið sér orð fyrir að vera í fremstu röð á þesu sviði. Verkefnið er unnið í samvinnu sjávarútvegsráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslunnar.
>>>
Steingrímur Eyfjörð var sá íslenski listamaður sem kom fram á Feneyjatvíæringnum árið 2007. Guðni Bragason, fastafulltrúi, hélt erindi fyrir hönd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, þegar sýning Steingríms var opnuð. Hérna er hægt að lesa erindið í fullri lengd (á ensku).
>>>
Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands hjá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP), flutti ávarp fyrir hönd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, á árlegum fundi framkvæmdastjórnar WFP. Hægt er að lesa ávarpið í fullri lengd hér á síðunni (ensku).
>>>
Gott samstarf hefur tekist með sendiráðinu og ítalsk-íslenska verslunarráðinu og er nú unnið að því að halda aðalfund ráðsins á Ítalíu í vetur. Sú vinna er einnig unnin í samvinnu við Viðskiptaþjónustu ráðuneytisins. Formaður verslunarráðsins er Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). >>>
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, heimsótti FAO hinn 14. maí sl. Átti Georg fund með Ichiro Nomura, yfirmanni fiskideildarinnar, og kynnti sér starfsemi FAO.
>>>
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, flutti ávarp við opnun ráðstefnu um viðskipti með fisk og helstu tækifæri og áskoranir í þessum viðskiptum, sem haldin var í Háskólanum á Akureyri 1. - 2. febrúar 2007.
>>>
Hinn 26. apríl var haldinn í Osló fundur James Morris, aðalframkvæmdastjóra WFP, og Norðurlandanna, Belgíu, Bretlands, Hollands, Kanada, Sviss og Þýskalands.>>>
Undirritað hefur verið samkomulag milli utanríkisráðuneytisins og FAO um þjálfunarnámskeið sem haldin verða í samvinnufiskimáladeildar FAOog Sjávarútvegsskóla Háskóla Sþ. á Íslandi.>>>