Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fastanefnd

Fastanefnd Íslands í Róm hefur fyrirsvar af hálfu íslenskra stjórnvalda gagnvart stofnunum Sameinuðu þjóðanna þar í borg, sem eru Matvæla- og landbúnaðarstofun Sameinuðu þjóðanna (Food and Agriculture Organization of the United Nations, FAO), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) og Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (International Fund for Agricultural Development, IFAD). Hún gegnir einnig hlutverki sendiráðs gagnvart Ítalíu.

FAO
Markmið FAO er að tryggja fæðuöryggi allra jarðarbúa. Stofnunin vinnur í þágu allra 187 aðildarríkjanna, þróunarríkja jafnt sem þróaðra ríkja, og er vettvangur fyrir stefnumörkun, upplýsingaöflun og tækniþekkingu í þágu markmiða sinna. Stofnunin er eina alheimsstofnunin, sem fjallar um málefni sjávarútvegs og lifandi auðlinda hafsins. Sem slík gegnir hún mikilvægu hlutverki í alþjóðasamstarfi Íslendinga að nýtingu auðlinda hafsins. Fastanefndin í Róm gætir hagsmuna Íslands á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar í starfi stofnunarinnar og stuðlar að þróunarsamvinnu milli Íslands og annarra landa.

WFP
Fastanefndin kemur einnig fram fyrir hönd stjórnvalda hjá Matvælaáætluninni (WFP) sem vinnur að neyðaraðstoð og styður félagslega og efnahagslega þróun. WFP skipuleggur umfangsmikla matvælaaðstoð við fólk sem býr við hungur af völdum náttúruhamfara, fátæktar og ófriðar. Íslensk stjórnvöld hafa stutt neyðaraðstoð WFP víða um heim.

IFAD
Fastanefndin sinnir einnig IFAD-sjóðnum sem aflar fjár til lána með lágum vöxtum og styrkja til þróunarverkefna í landbúnaði og sjávarútvegi í þeim tilgangi að auka fæðuframleiðslu í þróunarlöndum. Markmið IFAD er að gera fátæku fólki, sem lifir af landbúnaði og veiðum, kleift að brjótast úr fátæktinni.




Fastanefnd Íslands í Róm starfar í samræmi við Stefnumörkun í málefnum hafsins, sem samþykkt var í ríkisstjórn 25. apríl 2004, og Stefnumið Íslands í þróunarsamvinnu 2005 – 2009 sem utanríkisráðherra lagði fram á Alþingi 29. apríl 2005. Stefnumiðin byggja eftirfarandi fjórum stoðum:

1) Mannauði, jafnrétti og efnahagslegri þróun,
2) Lýðræði, mannréttindum og stjórnarfari,
3) Friði, öryggi og þróun,
4) Sjálfbærri þróun.

 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: