Kjörræðismenn Íslands á Indlandi
Hlutverk kjörræðismanna er að gæta hagsmuna íslenskra ríkisborgara í gistiríki og styðja við stjórnmála-, viðskipta- og menningarsamstarf. Kjörræðismenn aðstoða einnig, eftir föngum, íslenska ríkisborgara sem eru í vanda staddir í gistiríki.
Ísland er með einn kjörræðismann á Indlandi, og einnig á Sri Lanka og í Nepal.
Ísland er ekki með kjörræðismenn í Indónesíu og Bangladess, og ekki á Maldiveyjum eða Seychelleseyjum. Vinsamlega hafið samband við sendiráðið ef þörf er á upplýsingum eða aðstoð sem tengist þessum ríkjum.



