Sendiráð Íslands – Nýju Delhi, Indlandi

11 Aurangzeb Road, New Delhi 110011, Sími: +91 (0) 11 4353 0300


Tungumál


Viðskiptaþjónusta sendiráðs Íslands á Indlandi

Meginverkefni sendiráðs Íslands í Nýju Delí er að vinna að frekari eflingu viðskiptasamstarfs Íslands og Indlands, með aukinni staðarþekkingu og uppbyggingu tengslanets í indversku viðskipta- og stjórnmálalífi. Það starf er einkum þríþætt:

  • Styrking lagalegs ramma viðskipta ríkjanna, s.s. með því að ýta á eftir gerð fjárfestingasamnings, tvísköttunarsamnings og mögulegs fríverslunarsamnings á milli Íslands og Indlands.
  • Aðstoð við og kynning á íslenskum atvinnugreinum sem hyggja á viðskipti við Indland. Samstarf við íslensk og indversk hagsmunasamtök í einstökum geirum, s.s. sjávarútvegi, orku, fjárfestingum, lyfjaiðnaði, ferðamennsku o.fl.
  • Almenn þjónusta og bein aðstoð við íslensk fyrirtæki sem hyggja á viðskipti við Indland. Meðal þjónustu sendiráðsins má nefna skrifstofuaðstöðu, tengslamyndun, markaðsrannsóknir, milligöngu um áreiðanleikakannanir, upplýsingamiðlun um stofnun fyrirtækja og regluverk varðandi viðskipti á Indlandi.

Helstu hagsmunasamtök Indlands á sviði viðskipta eru á meðal samstarfsaðila sendiráðsins, þ. á m.:

  • Confederation of Indian Industries (CII)
  • Federation of Indian Industry and Commerce (FICCI)
  • National Association of Software&Service Companies (NASSCOM).

Staðarráðinn viðskiptafulltrúi sendiráðsins, hr. Anshul Jain, er hluti af viðskiptafulltrúakerfi Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins (VUR).

Hafið óhikað samband ef þið hafið spurningar um hvaða viðskiptaþjónustu sendiráðið veitir.

 

 

Leturstærð: