Sendiráð Íslands – Nýju Delhi, Indlandi

11 Aurangzeb Road, New Delhi 110011, Sími: +91 (0) 11 4353 0300


Tungumál


Vegabréfsáritun til Íslands / Shengen áritun

Í Nýju Delí gefur danska sendiráðið út vegabréfsáritanir fyrir hönd Íslands.

Frá 25. mars 2001 hefur Ísland ásamt 14 öðrum Evrópuríkjum tekið þátt í Schengen-samstarfinu, sem m.a. á að tryggja frjálsa för einstaklinga um innri landamæri Schengen-ríkjanna. Samkomulag þetta hafði í för með sér breytt fyrirkomulag varðandi útgáfu vegabréfsáritana fyrir ferðamenn.

Þeir sem koma inn á Schengen-svæðið fara í gegnum vegabréfseftirlit við komu til fyrsta ríkis á svæðinu en eftir það er ekki um frekara eftirlit að ræða. Því má segja að að við útgáfu áritunar, vegna væntanlegrar ferðar til Ísland, er ekki eingöngu verið að gefa út vegabréfsáritun til Íslands heldur gefur áritunin aðgang inn til allra Schengen-ríkjanna. Áritunarbeiðnir fara því í gegnum annað ferli nú en þegar áritun gilti bara til Íslands.

Þau lönd sem eru aðilar að Schengen geta gefið út áritanir fyrir hönd hvers annars og sendiráð annarra Schengenríkja á yfir 100 stöðum vítt og breitt um heiminn gefa út áritun fyrir hönd Íslands

Upplýsingar um útgáfu áritana fyrir íslenska ríkisborgara til Indlands, sem og umsóknareyðublöð, er að finna á heimasíðu danska sendiráðsins.

------------------------ ------------------- ----------------------

Íslendingar sem ferðast til Indlands þurfa á vegabréfsáritun að halda. Áritanir eru gefnar út hjá hjá indverska sendiráðinu í Osló.



 

 


Fax:

+91 (0) 11 4240 3001


Opnunartími:

Mán-fim
9:00 - 16:30

Fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, enska.


 

Leturstærð: