Spurt og svarað
Yfirlit
Þurfa Íslendingar vegabréfsáritun til Indlands?
Já, íslenskir ríkisborgarar sem hyggjast ferðast til Indlands verða að sækja um vegabréfsáritun hjá sendiráði Indlands gagnvart Íslandi, sem staðsett er í Osló. Fylla þarf út umsókn þar að lútandi og senda ásamt passamyndum og vegabréfi, sjá leiðbeiningar á heimasíðu indverska sendiráðsins. Umsækjendum skal bent á að nokkurn tíma getur tekið að fá vegabréfsáritun.
Hvaða viðmiðanir eru í gildi varðandi bólusetningar vegna ferðalaga til Indlands?
Landlæknisembættið veitir upplýsingar um hvaða bólusetningar eru æskilegar ef ferðast skal til Indlands. Hafa þarf nokkurn fyrirvara á bólusetningum.
Geta Íslendingar sótt um vegabréfsáritun fyrir indverska vini og samstarfsmenn?
Nei, indverskir ríkisborgarar sækja um vegabréfsáritun til Íslands hjá sendiráði Danmerkur í Nýju sem sinnir útgáfu Schengen-áritana í samræmi við samning Íslands og Danmerkur. Nánari upplýsingar um vegabréfsáritanir til Íslands er að finna á vefsetri danska sendiráðsins í Delí.



