Ambassade d'Islande - Paris, France

8, avenue Kléber, 75116 Paris - Tél: +33-01 44 17 32 85



Actualités


Aude Rocourt, markaðsstjóri Baccardie í Frakklandi, listakonan Katrín Friðriks og Tómas Ingi Olrich, sendiherra
Aude Rocourt, markaðsstjóri Baccardie í Frakklandi, listakonan Katrín Friðriks og Tómas Ingi Olrich, sendiherra

Opnun sýningar Katrínar Friðriks í Palais Bénédictine í Fécamp

19.3.2007

Þann 15. mars var opnuð sýning ungrar, íslenskrar listakonu, Katrínar Friðriks, í sýningarsölum Bénédictine-hallarinnar í bænum Fécamp, skammt norðan við hafnarborgina Le Havre. Sendiherra Íslands, sem var viðstaddur sýninguna og ávarpaði sýningargesti, er verndari sýningarinnar. Sýning Katrínar í Bénédictine-höllinni stendur til 17. júní.

Katrín er fædd 1974, uppalin í Lúxembourg og hefur starfað að listsköpun sinni í Evrópu og Bandaríkjunum.

Sýning Katrínar í Fécamp er fyrsta af þremur sýningum sem hún heldur á árinu í Frakklandi og Þýskalandi. Katrín vinnur nú að viðamikilli 80m2 veggskreytingu fyrir íþróttamiðstöðina Nouveau Centre Olympique í borginni Nîmes í Suður-Frakklandi sem vígð verður í október nk. Einnig hyggst hún opna sýningu í Lúxemborg í byrjun júlí í samstarfi við aðra íslenska listakonu sem þar býr, Guðrúnu Benediktu Elíasdóttur.



 

 


Fax:

01 40 67 99 96


Heures d'ouverture:

Lundi - Vendredi:
09h30-13h00 &
14h00-17h00

Jours de fermeture


Langues:

Francais, Anglais, Espagnol, Italien, Islandais.


 

Leturstærð:

Neðraval