Ambassade d'Islande - Paris, France

8, avenue Kléber, 75116 Paris - Tél: +33-01 44 17 32 85



Actualités


Bertrand Ringot, bæjarstjóri Gravelines, Tómas Ingi Olrich, sendiherra og Steinþór Pétursson, bæjarstjóri Fáskrúðsfjarðar ásamt fríðu föruneyti
Bertrand Ringot, bæjarstjóri Gravelines, Tómas Ingi Olrich, sendiherra og Steinþór Pétursson, bæjarstjóri Fáskrúðsfjarðar ásamt fríðu föruneyti

"Fête des Islandais" í Gravelines

26.9.2006

Sendiherra Íslands í Frakklandi tók þátt í hátíðinni “Fête des Islandais” í bænum Gravelines, sem var haldin 22.-25. september til að minnast franskra sjómanna sem stunduðu fiskveiðar við Ísland. Frá Gravelines, sem stendur við Ermarsund, héldu skipin til veiða við Íslandsstrendur, en einnig voru veiðarnar stundaðar frá Bretagne-skaga.

Haldin var guðsþjónusta í minningu drukknaðra sjómanna, einnig var athöfn þar sem blómsveig var kastað í sjó fyrir utan höfnina. Sýndar voru ljósmyndir frá Íslandi og ráðstefna haldin um landið. Ýmislegt var til skemmtunar alla helgina.

Fáskrúðsfjörður er vinabær Gravelines á Íslandi og sóttu hátíðina 6 fulltrúar, frá Fáskrúðsfirði og Fjarðabyggð sem bærinn hefur nýlega sameinast.



 

 


Fax:

01 40 67 99 96


Heures d'ouverture:

Lundi - Vendredi:
09h30-13h00 &
14h00-17h00

Jours de fermeture


Langues:

Francais, Anglais, Espagnol, Italien, Islandais.


 

Leturstærð:

Neðraval