Tónlistarhátíđin í Esparron tókst vel
Tónlistarhátíđin „Provence-Islande“ var haldin í bćnum Esparron de Verdon í Efra-Provence dagana 30. júní til 10. júlí. Ármann Örn Ármannsson er upphafsmađur hátíđarinnar og skipuleggjandi hennar. Ţetta var í fimmta sinn sem hátíđin er haldin, en ţađ var áriđ 2000 ađ Ármann Örn stóđ í fyrsta sinn fyrir henni. Hefur hann fengiđ í heimsókn jafnt íslenska sem erlenda listamenn, og sannarlega blásiđ lífi í menningarlíf stađarins.

Í ár styrkti menntamálaráđuneytiđ, Íslandsbanki, Kópavogsbćr og Össur Kristinsson hátíđina, auk ţess sem bćjarstjórnin í Esparron og sýslusjóđur veittu verkefninu styrki. Í útsendingu hérađsútvarpsins, Radio Provence, var hátíđin kynnt og ţar sátu m.a. fyrir svörum sendiherra Íslands, Tómas Ingi Olrich og Jaap Schröder fiđluleikari.
Skálholtskvartettinn lék á fyrstu tónleikum hátíđarinnar ţann 30. júní, en kvartettinn skipa Jaap Schröder (fiđla), Rut Ingólfsdóttir (fiđla), Svava Bernharđsdóttir (víóla) og Sigurđur Halldórsson (selló). Léku ţau verk eftir Boccherini, Joseph og Michael Haydn. Fóru tónleikarnir fram í kirkju bćjarins, og var hún ţéttskipuđ hlustendum, um 80 manns.
Píanóleikarinn Vovka Ashkenazy hélt einleikstónleika 1. júlí og lék ţar verk eftir Chopin, Beethoven, Ravel og Rachmaninoff. Tónleikar hans voru ennfremur mjög vel sóttir. Ashkenazy lék síđan undir á tónleikum Ólafs Kjartans Sigurđssonar barítónsöngvara ţann 3. júlí, en ţar fluttu ţeir međal annars verk eftir Mozart, Sigvalda Kaldalóns, Karl O. Runólfsson, Jóhann Tryggvason, Rachmaninoff, Ravel og Jón Ţórarinsson.
Franski píanóleikarinn Pierre Morabia hélt erindi um tónlist Franz Liszt og lék ennfremur verk hans mánudagskvöldiđ 3. júlí. Morabia er píanókennari viđ tónlistarháskólann í Marseille og hefur haldiđ einleikstónleika víđa um Evrópu.
Sópransöngkonan Alina Dubik hélt tónleika viđ undirleik Jónasar Ingimundarsonar ţann 6. júlí. Söng hún međal annars verk eftir Bjarna Böđvarsson, Rachmaninov, Chopin, Saint-Saëns og Liszt.
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari lék ásamt Pierre Morabia á lokatónleikum hátíđarinnar sunnudaginn 10. júlí. Ţar léku ţau međal annars verk eftir Bach, Poulenc, Fauré, Debussy og Bourne.




