Ambassade d'Islande - Paris, France

8, avenue Kléber, 75116 Paris - Tél: +33-01 44 17 32 85



Foire de Caen

Ísland í heiðurssæti á Foire Internationale de Caen

Foire Internationale de Caen í Normandí býður Íslandi að vera heiðursland sýningarinnar, 15.-25. september 2006.

Foire er alhliða heimilissýning með menningarlegu ívafi sem nýtur mikilla vinsælda alls staðar í Frakklandi. Búist er við um 220 þúsund gestum og að flestir þeirra heimsæki Íslandsþorpið í hjarta sýningarinnar, þar sem settar verða upp verslanir, ferðaskrifstofur, kaffihús og svið fyrir menningardagskrá. Mikið er lagt í að búa til skemmtilegt íslenskt umhverfi.

Foire de Caen

Um 15 íslensk fyrirtækimunu taka beinan þátt í sýningunni. Selt verður íslenskt handverk og listmunir, skart- og minjargripir, fatnaður, ullarvörur og matvæli. Nokkrar franskar ferðaskrifstofur selja ferðir til Íslands með aðstoð íslenskra fyrirtækja auk Ferðamálaráðs.

Stærsti veitingastaður Foire Internationale de Caen verður tileinkaður Íslandi. Þar munu 1.500 -3.000 gestir snæða íslenskar máltíðir dag hvern í þá 10 daga sem sýningin stendur yfir.

Í Íslandsþorpinu verður sett upp kaffihúsið “Café littéraire” sem skipuleggur viðamikla dagskrá með kynningu á íslenskum bókmenntum fyrir börn og fullorðna með aðstoð kennara norrænu deildar háskólans í Caen.  Jean Renaud, formaður deildarinnar, Steinunn Le Breton, ræðismaður Íslands í Caen og fyrrum kennari við háskólann, rithöfundarnir Þórarinn Eldjárn og Andri Snær Magnason auk þýðendurnir Régis Boyer og Eric Boury munu öll taka þátt í bókmenntakynningunni.  Sögu frönsku sjómannanna sem sóttu Íslandsmið fyrr á öldum verður gerð skil með aðstoð Elínar Pálmadóttur og Æsu Sigurjónsdóttur.  Sérstök dagskrá verður helguð íslensku dýralífi (þ.á.m. hestinum), náttúru og jarðfræði.  Jafnframt verður kynning á Íslandi sem áfangastað fyrir ferðamenn með aðstoð Önnu Kristínar Ásbjörnsdóttur, eiganda ferðaskrifstofunnar 66°Nord í Lyon,  Philippe Patay samstarfsmanni hennar og Rémi Marion.

Íslenski dansflokkurinn Sporið úr Borgarfirði og Guitar Islancio munu svo skemmta gestum daglega.

Undirbúningur þátttöku Íslendinganna hefur gengið vonum framar og komust færri að en vildu.  Fjölmiðlar í Normandí fylgjast vel með undirbúningnum og er greinilegt að Ísland er í brennidepli í allri umfjöllun og kynningu á sýningunni.

Í tengslum við sýninguna verður haldinn viðskiptadagur í Caen, 19. júní í umsjá Fransk-íslenska viðskiptaráðsins. Nánari upplýsingar fylgja síðar.

 



 

 


Fax:

01 40 67 99 96


Heures d'ouverture:

Lundi - Vendredi:
09h30-13h00 &
14h00-17h00

Jours de fermeture


Langues:

Francais, Anglais, Espagnol, Italien, Islandais.


 

Leturstærð:

Neðraval