Islannin suurlähetystö - Helsinki, Suomi

Pohjoisesplanadi 27 C FIN-00100 Helsinki - Puh: +358 (9) 612 2460



Ajankohtaista Islannista


Hannes Heimisson, sendiherra, og Vaira Vike-Freiberga, forseti Lettlands

Afhending trúnaðarbréfs í Lettlandi

17.3.2006

Hannes Heimisson, sendiherra, afhenti í gær Vaira Vike-Freiberga, forseta Lettlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Lettlandi með aðsetur í Helsinki. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Riga.

Í viðræðum við forseta Lettlands lagði sendiherra áherslu á náinn vinskap þjóðanna og vaxandi samskipti, bæði á vettvangi stjórnmála og viðskipta. Forseti Lettlands tók undir þetta og þakkaði Íslendingum fyrir mikilvægan stuðning á þeim fimmtán árum er liðin væru frá því Lettland endurheimti sjálfstæði sitt. Vaira Vike-Freiberga kvaðst hafa tekið eftir velgengni Íslendinga á undanförnum árum, í efnahagsmálum og á sviði menningar og vísinda. Íslensk fyrirtæki hefðu haslað sér völl í Lettlandi og að starfsemi þeirra væri mikilvæg fyrir uppbyggingu atvinnu í landinu.



 

 

Leturstærð: