Sendiráð Íslands - Helsinki, Finnland

Pohjoisesplanadi 27 C FIN-00100 Helsinki - Sími: +358 (9) 612 2460



Úkraína

Úkraína

Afhending trúnaðarbréfs

16.10.2006

Hannes Heimisson og Viktor JústsjenkóHannes Heimisson, sendiherra, afhenti 12. þ.m. Viktor Jústsjenkó, forseta Úkraínu, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands í Úkraínu með aðsetur í Helsinki. Fór afhendingin fram í embættisbústað forsetans í höfuðborginni Kiev.

Sendiherra átti einnig fundi með Borys Tarasyuk, utanríkisráðherra Úkraínu og embættismönnum utanríkisráðuneytisins. Á fundinum með utanríkisráðherranum var meðal annars rætt um undirbúning opinberrar heimsóknar Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra til Úkraínu 6. - 9. nóvember næstkomandi og vaxandi samskipti ríkjanna. Ráðherrann var einnig upplýstur um áherslur Íslands í framboði til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Í för með utanríkisráðherra verður fjölmenn viðskiptasendinefnd. Útflutningsráð og utanríkisráðuneyti vinna að undirbúningi heimsóknar viðskiptasendinefndarinnar í nánu samstarfi við Kostyantyn Malovanyy, kjörræðismann Íslands í Kiev.

Fjárfestingar Íslendinga í Úkraínu hafa aukist mjög að undanförnu, einkum með kaupunum á Bank Lviv, banka í samnefndri borg í vesturhluta Úkraínu undir forystu Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns MP fjárfestingarbanka.

 

 

Leturstærð: