Umdæmislönd
Liechtenstein
Fastanefndin er einnig sendiráð Íslands gagnvart Liechtenstein og fer með tvíhliða samskipti við furstadæmið. Viðskiptamál, menningar- og landkynningarmál eru helstu sviðin sem sendiráðið vinnur að gagnvart Liechtenstein.
Frekar lítil viðskipti hafa verið við Liechtenstein eins og sjá má á tölum frá Hagstofu Íslands. Aðal útflutningsvara Íslands til Liechtenstein hefur verið dúnn en stærsti hluti innfluttrar vöru frá Liechtenstein hefur verið ýmis efnavara s.s. lyf og efni í þau.
Ýmsar upplýsingar um Liechtenstein
Staðsetning: Mið Evrópa, á milli Austurríkis og Sviss
Stærð: 160 km2
Fólksfjöldi: 33.717 (júlí 2005)
Opinbert tungumál: Þýska
Þjóðernishópar: Liechtensteinar (86%), Tyrkir, Ítalir og aðrir 14%
Trúarhópar: Rómversk-kaþólskir 76.2%, mótmælendur 7%, óþekktir 10.6%, aðrir 6.2%
Stjórnarfar: Arfgengt stjórnarskrárbundið furstadæmi sem hvílir á lýðræðis- og þingræðislegum grunni
Hagkerfi: Frjálst hagkerfi sem byggir að miklu leyti á þróuðum iðnaði, innfluttu vinnuafli og fjölbreytilegri starfsemi smárra fyrirtækja. Liechtenstein er meðlimur í Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA)
- Opinber upplýsingavefur Liechteinstein
- Leitarvefur yfir fyrirtæki og stofnanir í Liechtenstein
- Viðskiptaráð Liechtenstein






