Sendiherra
Sendiherra
Lífsferill
Svavar Gestsson
f. 26.06. 1944
- Skipaður sendiherra í íslensku utanríkisþjónustunni 6. mars 1999.
- Sendiherra Íslands í Danmörku frá nóvember 2005, jafnframt sendiherra í Rúmeníu, Tyrklandi og Ísrael.
- Sendiherra Íslands í Stokkhólmi frá ágúst 2001 til október 2005, jafnframt sendiherra í Albaníu, Bangladess. Búlgaríu, Pakistan, Sri Lanka og Serbíu og Svartfjallalandi.
Starfsferill
- Aðalræðismaður íslands í Winnipeg frá 1. apríl 1999 og jafnframt framkvæmdastjóri hátíðahaldanna er minnst var í Kanada 1000 ára afmælis íslensku landafundanna í Ameríku.
- Ritstjóri Þjóðviljans 1971 til 1978.
- Alþingismaður fyrir Alþýðubandalagið 1978 til 1999.
- Menntamálaráðherra 1988 til 1991.
- Heilbrigðisráðherra 1980 til 1983.
- Félagsmálaráðherra 1980 til 1983.
- Viðskiptaráðherra 1978 til 1979.
- Formaður Alþýðubandalagsins 1980 til 1987.
- Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1995 til 1999.
Ýmis verkefni
- Í stjórn Landsvirkjunar 1996 til 1998.
- Í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1991 til 1994.
- Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1991 til 1995.
- Stjórnarformaður Norræna menningarsjóðsins.
- Sótti þingmannaráðstefnu heimskautasvæða í Salekhard 1998.
- Sat í vestnorræna þingmannaráðinu 1995 til 1999, þar af formaður eitt ár.
- Tók þátt í þingi Alþjóðaþingmannasamtakanna í Tógó 1985 og í Indlandi 1993.
- Sat allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna 1976, 1987, 1988 og 1995.
- Þátttakandi í þingum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Alþjóðavinnumálastofnunrinnar í Genf 1980, 1981 og 1982.
- Formaður ráðherranefndar Efta 1979
Útgáfur
Greinar í flestum íslenskum blöðum 1978 til 1999; bókin Sjónarrönd um jafnaðarstefnunaa 1995. Greinar í fjölda erlendra blaða og tímarita, einkum norrænna.
Eiginkona: Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi forseti borgarstjórnar Reykjavíkur.


