Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Fréttir/viðburðir


Dagur Jóns Sigurðssonar og Jónsverðlaunin

25.4.2008

Dagur Jóns Sigurðssonar var hátíðlegur haldinn í fyrsta sinn á sumardaginn fyrsta 24. apríl 2008 í Jónshúsi. Forseti Alþingis flutti hátíðaræðu. Í tilefni dagsins voru veitt verðlaun Jóns Sigurðssonar og voru þau í fyrsta sinn veitt Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi. Flutt voru menningaratriði: Snorri Wium söng við undirleik Evu Þyríar Hilmarsdóttur og Böðvar Guðmundsson tók saman og flutti efnið Jón Sigurðsson og skáldin. Húsfyllir var á samkomunni sem tókst í alla staði vel og vakti athygli íslenskra fjölmiðla. Sendiherra stjórnaði samkomunni.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+45-33 18 10 59


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, danska, enska