Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Fréttir/viðburðir


Opinber heimsókn utanríkisráðherra

11.3.2008

Í dag hefst tveggja daga opinbera heimsókn utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, til Danmerkur. Mun Ingibjörg Sólrún ganga á fund Margrétar Þórhildar Danadrottningar og hitta Per Stig Møller, utanríkisráðherra Dana. Á meðal þeirra mála sem þau munu ræða eru málefni Norður-Íshafsins, Afganistan, Mið-Austurlanda og loftslagsmál, evrópumál og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þá á ráðherra fundi með utanríkismálanefnd danska þingsins, Helle Thorning-Schmidt, formanni danskra jafnaðarmanna og Bertil Haarder, menntamálaráðherra.

Í tilefni heimsóknar ráðherra stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir ráðstefnu á morgun í Kaupmannahöfn um íslensk efnahagsmál í ljósi alþjóðavæðingar. Flytur Ingibjörg Sólrún framsöguerindi ráðstefnunnar.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+45-33 18 10 59


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, danska, enska