Extra Bladet hefur beðið Kaupþing banka afsökunar vegna greinaskrifa
Danska blaðið Ekstra-Bladet hefur beðið Kaupþing banka og Sigurð Einarsson, stjórnarformann bankans, afsökunar vegna greinaskrifa um starfsemi bankans sem birtust haustið 2006.
Kaupþing hafi gripið til ráðstafana þegar danska blaðið birti ásakanir á heimasíðu sinni um að bankinn hefði gerst sekur um alvarlegt fjármálamisferli.
Fram kemur, að Ekstra-Bladet hafi fallist á að birta afsökunarbeiðni á vefsíðu sinni, sem verður látin standa þar í mánuð. Blaðið mun einnig greiða skaðabætur og bæta Kaupþingi hæfilegan lögfræðikostnað.


