Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Fréttir/viðburðir


Mini-Airwaves í Kaupmannahöfn

22.5.2007

Hljómsveitirnar GusGus og FM Belfast troða upp á sérstöku Iceland Airwaves kvöldi á skemmtistaðnum Vega í Kaupmannahöfn föstudaginn 1. júní undir yfirskriftinni 'Mini Airwaves'. Einnig koma fram frönsku raftónlistarmennirnir Spitzer, DJ Nil + Paral-lel og plötusnúðarnir Kasper Björke, Jack Schidt, Teki & Orgasmx.

Í tilkynningu frá Airwaves segir að tilgangurinn með athæfinu sé fyrst og fremst að færa hluta af Airwaves stemmningunni út fyrir landsteinana, kynna hátíðina fyrir Kaupmannahafnarbúum og búa til almennilegt partý í dönsku höfuðborginni.

Icelandair býður upp á pakkaferðir á tónleikana frá Íslandi.

 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+45-33 18 10 59


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, danska, enska