Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Fréttir/viðburðir


Dagur Kari modtager årets Dreyer Pris

Dagur Kári heiðraður í Kaupmannahöfn

15.11.2006

Þann 22. nóvember næstkomandi hlýtur Dagur Kári enn eina viðurkenningu í Kaupmannahöfn, stærstu kvikmyndaverðlaun Dana, Peter Emil Refn verðlaunin.

Dagur Kári er fimmti leikstjórinn sem fær verðlaunin en með þeim fylgja 105.000 dk.kr. Fyrri verðlaunahafar
eru Lars von Trier, Lukas Moodysson, Nicolas Winding Refn og Natasha Arthy.

Þann 23. nóvember kl. 20.00 verður haldið sérkvöld með Degi Kára á Dönsk-íslenskum Bíódögum á Norðurbryggju. Dagur Kári sýnir þar stuttmyndina Old Spice ásamt kvikmyndinni Nói Albínói, og svarar að þeim loknum spurningum áhorfenda. Þar á eftir býður sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn gestum upp á
hressingu í tilefni verðlaunana.

 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+45-33 18 10 59


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, danska, enska