Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku
Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050
Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050
Tónlistarmaðurinn Mugison og hljómsveitin Bloodgroup spila á Roskilde í ár. Hátíðin hefur áður skartað íslenskum nöfnum, en eins og allir vita opnaði Björk hátíðina á Orange Scene árið 2007.

Verk Ólafs Elíassonar, New York City Waterfalls, verður opnað í New York í dag. Verkið samanstendur af fjórum fossum sem settir hafa verið upp í höfnum New York borgar. Meira má lesa um atburðinn í netútgáfu Politiken í dag og í The New York Times.
>>>
Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn hélt tónleika fyrir fullu húsi í nýja sendiherrabústaðnum á Freðriksbergi, þann 7. júní síðastliðinn. Guðrún Ágústsdóttir, kona sendiherrans, tók vel á móti hópnum, sem er fyrsti kórinn sem heldur tónleika í þessum mjög svo skemmtilega sal, sem áður var sundlaug. Þótti hljómburður góður og tónleikarnir vel heppnaðir í alla staði.
Boðið var upp á léttar veitingar utandyra eftir tónleikana, í blómum skrýddum garðinum. Flytjendur og gestir báru að því góðan róm að spjalla í svo fallegu umhverfi.
Meðfylgjandi mynd sýnir, meðal annars, formann Íslenska kvennakórsins, Guðrúnu Snorradóttur, afhenda nöfnu sinni Ágústsdóttur gjöf fyrir hönd kórsins.
Íslenski Kvennakórinn í Kaupmannahöfn heldur tónleika í nýja sendiherrabústaðnum, laugardaginn 7. júní kl. 15:00.
>>>
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Dansk íslenska verslunarráðið efndu til fundar á Bryggjunni miðvikudaginn 21. maí þar sem fjallað var um íslenskt efnahagslíf. Fundurinn tókst mjög vel, fundarsókn var góð og fyrirlesarar skiluðu sínu verki af stakri prýði.
Tveir kvennakórar hittast laugardaginn 26. apríl kl. 17:00, í Skt. Páls kirkju í Kaupmannahöfn.
Guðþjónasta í Skt. Páls kirkju sunnudaginn 27. apríl kl.13:00. Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson messar.
>>>Dagur Jóns Sigurðssonar var hátíðlegur haldinn í fyrsta sinn á sumardaginn fyrsta 24. apríl 2008 í Jónshúsi. Í tilefni dagsins voru veitt verðlaun Jóns Sigurðssonar og voru þau í fyrsta sinn veitt Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi.
Sá sjaldgæfi atburður gerðist þann 31. mars síðastliðinn að birt var auglýsing á íslensku í dönsku dagblaði. Auglýsingin birtist í Nyhedsavisen.
Það voru fyrirtækin Niko Nordic Aps. og Icelandair sem fengu auglýsinguna birta. Verið var að auglýsa stórtónleika Björgvins Halldórssonar í Kaupmannahöfn þann 24. apríl 2008.
Auglýsingin birtist aftur í Nyhedsavisen þann 10.04. næstkomandi.
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 1,25 prósentur í 15%. Forsendur verðbólguspár sem birtist í Peningamálum í nóvember sl. og fól í sér óbreytta stýrivexti fram á síðari helming þessa árs hafa brugðist.

Eins kunnugt var kom utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í opinbera heimsókn til Danmerkur á dögunum; hún kom að kvöldi 10. mars og hún fór 12. mars um kvöldið.
Á þeim tíma hafði hún átt fjölda funda: Hún fékk áheyrn hjá Margréti drottningu, hitti forseta forseta þingsins, formann utanríkismálanefndar þingsins og nokkra nefndarmen, hitti Helle Thorning Schmidt, formann Jafnaðarmannaflokksins, og átti að sjálfsögðu langan fund með danska utanríkisráðherranum Per stig Möller. Í íslenska sendiráðinu hélt hún fund með erlendum sendiherrum sem eru jafnframt sendiherrar á Íslandi.
Þá er ónefndur sá fundur sem mesta athygli vakti en það var fundur um íslenskt efnahagslíf og þaðan er meðfylgjandi mynd. Þar komu hátt á annað hundrað manns.
Áður en ráðherrann fór úr landinu opnaði hún nýjan bústað sendiherra Íslands í kaupmannahöfn. "Við höfum fengið frábært vinnutæki," sagði Svavar Gestsson sendiherra um bústaðinn, er ráðherrann opnaði húsið formlega.
- Myndin er frá fundinum um efnahagslífið. Á myndinni eru frá vinstri Bent A Koch ritstjóri sem var fundarstjóri á fundinum, Sigurjón Sighvatsson kvikmyndagerðarmaður, Sigurður Einarsson stjórnarformaðrur Kaupþings, dr. Richard Portes prófessor við London Business School og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra. Myndina tók Mr. Hasse Ferrold.
Með þessari frétt sendir sendiráðið lesendum heimasíðunnar óskir um gleðilega páska.
Björgvin mætir ásamt stórhljómsveit sinni og strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Konunglegu Óperunnar í Kaupmannahöfn, sem og mörgum af fremstu dægurlagasöngvurum og hljóðfæraleikurum úr íslensku tónlistarlífi.
>>>
Kórinn Staka flytur myrka músík eftir Jón Leifs, Vagn Holmboe, Arvo Pärt og fleiri, á tónleikum föstudaginn 1. febrúar næstkomandi í Apostelkirken.
>>>
Heidi Strand hefur verið búsett á Íslandi um árabil. Hún sækir myndefni sitt í íslenska náttúru og dýralíf. Sýning Heidiar stendur yfir frá 31. janúar til 31. febrúar 2008.
>>>
Þann 7. febrúar næstkomandi mun Ragnar Bragason, kvikmyndagerðarmaður, opna kvikmyndahátíðina Biodager. Þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin og mun Ragnar flytja inngang að mynd sinni Foreldrar (2007).
>>>