Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Fréttir/viðburðir


Fréttir/viðburðir

16.5.2008 : Seðlabanki Íslands gerir gjaldmiðlaskiptasamninga

Seðlabankar Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur hafa gert tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Íslands. >>>
 

15.5.2008 : Disney, djass og djöflar

Íslensk söngveisla þar sem meðal annars verður boðið upp á aðalsöngkonu Múm Mr. Sillu, Kvintett Nínu Bjarkar með Kristian Jørgensen á fiðlu, draugasögur og Snar og Snöggur á helíumi. >>>
 

15.5.2008 : Íslendingar í Gallerí Ulriksholm

Helga_KristmundsdottirSunnudaginn 18. maí kl. 14:00 - 17:00 opnar ræðismaður Íslands, C. C. Nielsen, sýningu Helgu Kristmundsdóttur, Hönnu Ólafsdóttur, Helgu Benediktsdóttur og Preben Boye. >>>
 

13.5.2008 : Viðskiptafundur um íslenskt efnahagslíf

Sendiráð Íslands í Kaupmannahöf og Dansk íslenska viðskiptaráðið bjóða til seinniparts fundar um íslenskt efnahagslíf 21. maí 2008 kl: 17.00 - 18.30. Atburðurinn fer fram í Basalt, Nordatlantens Brygge, Strandgade 91, 1401 København K. >>>
 

5.5.2008 : Karíus og Baktus

Karius_og_BaktusLaugardaginn 7. maí, kl. 15, koma Karíus og Baktus í heimsókn á Bryggjuna. >>>
 

2.5.2008 : Vatnajökulsþjóðgarður

Ómar Ragnarsson heldur fyrirlestur á vegum Dansk-Islandsk Samfund, í Jónshúsi þann 15. maí, kl. 19:30. >>>
 

25.4.2008 : Kórtónleikar í Skt. Páls kirkju

Tveir kvennakórar hittast laugardaginn 26. apríl kl. 17:00, í Skt. Páls kirkju í Kaupmannahöfn.

>>>

 

25.4.2008 : Guðþjónusta og kaffihlaðborð

Guðþjónasta í Skt. Páls kirkju sunnudaginn 27. apríl kl.13:00. Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson messar.

>>>
 

25.4.2008 : Dagur Jóns Sigurðssonar og Jónsverðlaunin

verdlaun_april2008Dagur Jóns Sigurðssonar var hátíðlegur haldinn í fyrsta sinn á sumardaginn fyrsta 24. apríl 2008 í Jónshúsi. Í tilefni dagsins voru veitt verðlaun Jóns Sigurðssonar og voru þau í fyrsta sinn veitt Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi.

>>>

 

23.4.2008 : Sumardagurinn fyrsti

Sendiráðið er lokað á fyrsta degi Hörpu, eða á sumardaginn fysta, sem er fimmtudagurinn 24. apríl í ár. >>>
 

17.4.2008 : Kóngsbænadagur

Sendiráðið er lokað föstudaginn 18. apríl sem er Kóngsbænadagur (Store Bededag).

Kóngsbænadagur er fjórði föstudagur eftir páska og var tilskipaður sem almennur bænadagur á Íslandi árið 1686. Hann var ekki numinn úr tölu helgidaga fyrr en 1893.

>>>

 

16.4.2008 : Hátíð Jóns Sigurðssonar

 

jonsigurdsson3_090703

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin á sumardaginn fyrsta 24. apríl kl. 16:30. >>>

 

11.4.2008 : Hátíð á Bryggjunni

Icelandic horsesHelgina 26.-27. apríl næstkomandi standa Ferðamálaráð Íslands, Grænlands og Færeyja fyrir kynningarhátíð á Bryggjunni. >>>
 

7.4.2008 : Auglýsing á íslensku í Nyhedsavisen

events_clip_image002Sá sjaldgæfi atburður gerðist þann 31. mars síðastliðinn að birt var auglýsing á íslensku í dönsku dagblaði. Auglýsingin birtist í Nyhedsavisen.

Það voru fyrirtækin Niko Nordic Aps. og Icelandair sem fengu auglýsinguna birta. Verið var að auglýsa stórtónleika Björgvins Halldórssonar í Kaupmannahöfn þann 24. apríl 2008.

Auglýsingin birtist aftur í Nyhedsavisen þann 10.04. næstkomandi.

 

26.3.2008 : Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 1,25 prósentur í 15%. Forsendur verðbólguspár sem birtist í Peningamálum í nóvember sl. og fól í sér óbreytta stýrivexti fram á síðari helming þessa árs hafa brugðist.

>>>

 

19.3.2008 : Einkar vel heppnuð opinber heimsókn utanríkisráðherra

Iceland_Economy_08_Ferrold_2

Eins kunnugt var kom utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í opinbera heimsókn til Danmerkur á dögunum; hún kom að kvöldi 10. mars og hún fór 12. mars um kvöldið.

Á þeim tíma hafði hún átt fjölda funda: Hún fékk áheyrn hjá Margréti drottningu, hitti forseta forseta þingsins, formann utanríkismálanefndar þingsins og nokkra nefndarmen, hitti Helle Thorning Schmidt, formann Jafnaðarmannaflokksins, og átti að sjálfsögðu langan fund með danska utanríkisráðherranum Per stig Möller. Í íslenska sendiráðinu hélt hún fund með erlendum sendiherrum sem eru jafnframt sendiherrar á Íslandi.

Þá er ónefndur sá fundur sem mesta athygli vakti en það var fundur um íslenskt efnahagslíf og þaðan er meðfylgjandi mynd. Þar komu hátt á annað hundrað manns. 

 

Áður en ráðherrann fór úr landinu opnaði hún nýjan bústað sendiherra Íslands í kaupmannahöfn. "Við höfum fengið frábært vinnutæki," sagði Svavar Gestsson sendiherra um bústaðinn, er ráðherrann opnaði húsið formlega.

 

- Myndin er frá fundinum um efnahagslífið. Á myndinni eru frá vinstri Bent A Koch ritstjóri sem var fundarstjóri á fundinum, Sigurjón Sighvatsson kvikmyndagerðarmaður, Sigurður Einarsson stjórnarformaðrur Kaupþings, dr. Richard Portes prófessor við London Business School og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra.  Myndina tók Mr. Hasse Ferrold.

 

Með þessari frétt sendir sendiráðið lesendum heimasíðunnar óskir um gleðilega páska.

 

12.3.2008 : Íslenska hagkerfið - öflugt og sveigjanlegt

Ræða utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, á ráðstefnunni "Islands internationalisering - den økonomiske sektor i historisk og fremtidigt perspektiv", haldin í Kaupmannahöfn 11. mars 2008 (á dönsku). >>>
 

11.3.2008 : Sendiráðið er lokað þann 12. mars vegna opinberar heimsóknar utanríkisráðherra Íslands.

 

11.3.2008 : Opinber heimsókn utanríkisráðherra

Í dag hefst tveggja daga opinbera heimsókn utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, til Danmerkur. >>>
 

5.3.2008 : Islands internationalisering - Viðskiptaráðstefna

Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Viðskiptaráð Íslands, í samvinnu við Dansk-Islandsk Handelskammer og Dansk-Islandsk Samfund, halda viðskiptaráðstefnu á Radisson SAS, þann 11. mars næstkomandi. >>>
 

5.3.2008 : Skuldaálag bankanna lækkaði eftir útgáfu Kaupþings

KAUPÞING hefur lokið við þrjár svonefndar lokaðar skuldabréfasölur að upphæð 1.675 milljónir dollara, jafnvirði um 111 milljarða króna, til fjárfesta í Evrópu og Bandaríkjunum. >>>
 

19.2.2008 : Þorrablót eldri borgara og guðþjónusta í Kaupmannahöfn

Sunnudaginn 24. febrúar stendur Íslenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn fyrir þorrablóti eldri borgara í Kaupmannahöfn, í samvinnu við Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn og Jónshús. >>>
 

4.2.2008 : Loftnet - myndlistarsýning

Þrír íslenskir listamenn, Ráðhildur Ingadóttir, Margrét H. Blöndal og Tumi Magnússon, sýna á CO-LAB, frá 8. febrúar til 9. mars. >>>
 

30.1.2008 : Skýrsla BNP Paribas: Íslenska bankakerfið ekki að bráðna.....

Í nýrri skýrslu frá BNP Paribas, stærsta banka Frakklands, kemur fram að íslenska bankakerfið sé ekki að bráðna >>>
 

30.1.2008 : Björgvin Halldórsson heldur tónleika í Kaupmannahöfn

events_clip_image002Björgvin mætir ásamt stórhljómsveit sinni og strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Konunglegu Óperunnar í Kaupmannahöfn, sem og mörgum af fremstu dægurlagasöngvurum og hljóðfæraleikurum úr íslensku tónlistarlífi. >>>
 

28.1.2008 : Músík í myrkrinu

stakalg-mediumKórinn Staka flytur myrka músík eftir Jón Leifs, Vagn Holmboe, Arvo Pärt og fleiri, á tónleikum föstudaginn 1. febrúar næstkomandi í Apostelkirken. >>>
 

23.1.2008 : Heidi Strand sýnir í ráðhúsi Høje-Taastrup Kommune

Islandsk_natur2Heidi Strand hefur verið búsett á Íslandi um árabil.  Hún sækir myndefni sitt í íslenska náttúru og dýralíf.  Sýning Heidiar stendur yfir frá 31. janúar til 31. febrúar 2008. >>>
 

18.1.2008 : Svavar Gestsson, sendiherra, afhendir trúnaðarbréf í Slóveníu

Þann 17. janúar afhenti Svavar Gestsson, sendiherra, forseta Slóveníu, Dr. Danilo Türk, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands í Slóveníu með aðsetur í Kaupmannahöfn. >>>
 

7.1.2008 : Ragnar Bragason opnar Bíódaga á Nordatlantens Brygge

posterparentsÞann 7. febrúar næstkomandi mun Ragnar Bragason, kvikmyndagerðarmaður, opna kvikmyndahátíðina Biodager. Þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin og mun Ragnar flytja inngang að mynd sinni Foreldrar (2007). >>>
 

7.1.2008 : Steingrímur Eyfjörð sýnir á Nordatlantens Brygge

Steingrímur Eyfjörð, fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2007, sýnir fjögur verk sín á Nordatlantens Brygge frá 26. jan - 20. april 2008.
>>>
 

30.11.2007 : Kvennakór undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur í Kaupmannahöfn

Kvennakór undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur heldur tónleika í St. Pauls Kirke í Kaupmannahöfn 9. desember 2007 >>>
 

26.11.2007 : 8165 Íslendingar skráðir í Danmörku

Samkvæmt danska hagtölubankanum eru 8165 Íslendingar skráðir í Danmörku. >>>
 
Bodvar_Gudmundsson

26.11.2007 : Viðburðarríku afmælisári lokið

Viðburðarríku afmælisári Jónasar Hallgrímssonar lokið í Danmörku >>>
 
Nordisk mesterskab afholdes i Herning 24.-30.juli.

12.11.2007 : Íslenski hesturinn

Sunnudaginn 18. nóvember heldur Danska Íslandshestafélagið sýnikennslu með Eyjólfi Ísólfssyni, yfirreiðkennara við Hólaskóla. >>>
 
Bjorn_Bjarnason

30.10.2007 : Öryggismál á Norður-Atlantshafi

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti erindi um öryggismál á Norður-Atlantshafi. >>>
 

30.10.2007 : Handverk og útrás

Svavar Gestsson, sendiherra, opnaði sýninguna Kunsthåndverk i Centrum. >>>
 

26.10.2007 : Staða viðskiptafulltrúa við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn

Laus er til umsóknar staða viðskiptafulltrúa við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn. >>>
 
jonas1

25.10.2007 : Jónasarkvöld í Jónshúsi 16. nóvember nk.

Jónasarárinu lýkur með samkomu í Jónshúsi þann 16. nóvember nk. kl. 19:30. >>>
 
Einar_K._Gudfinnsson

24.10.2007 : Ráðstefna um framtíð sjávarútvegs í Danmörku og á Íslandi

Sendiráð Íslands í Danmörku hélt, í samstarfi við Glitni, Dansk-Íslenska Viðskiptaráðið og Danfish, vel heppnaða ráðstefnu um framtíð sjávarútvegs í Danmörku og á Íslandi. >>>
 
Einar K. Guðfinnsson og Svavar Gestsson

24.10.2007 : Ráðherra kynnti sér nýjustu tækni í Carnitech

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, heimsótti Carnitech Salmon í Álaborg í tengslum við ráðstefnuna Fremtiden for Fiskeindustrien sem haldin var í Álaborg síðastliðinn föstudag. >>>
 
BGSsept07

4.10.2007 : Viðskiptanetið stofnað í Kaupmannahöfn

Húsfyllir var í móttöku sendiráðsins með íslenskum fyrirtækjum sem starfa í Danmörku. >>>
 
Bjorgvin G. Sigurdsson

4.10.2007 : Eftirspurn eftir Íslandi

Vaxandi áhugi í Danmörku eftir upplýsingum um Ísland og fréttum af Íslandi. >>>
 

1.10.2007 : Stoðir gefur í sjóð fyrir dönsk-íslensk samstarfsverkefni

Stjórnarformaður Stoða, Kristín Jóhannesdóttir, afhenti Fondet for Dansk-Islandsk Samarbejde peningagjöf við athöfn í bústað sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn. >>>
 

1.10.2007 : Kvikmyndin Börn fékk Gullna svaninn

Íslenska kvikmyndin Börn, var valin besta myndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Kaupmannahöfn. >>>
 

1.10.2007 : Ræðismaður Íslands í Rúmeníu

Georgiana Pogonaru verður ræðismaður Íslands í Rúmeníu. >>>
 

14.9.2007 : Íslenskar kvikmyndir í Kaupmannahöfn

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Kaupmannahöfn stendur frá 20. til 30. september 2007. >>>
 

3.9.2007 : Jónasarhátíð í Kaupmannahöfn

Dagana 7. - 9. september verður haldin sérstök Jónasarhátíð í Kaupmannahöfn og nágrenni þar sem efnt verður til menningarviðburða af ýmsu tagi. >>>
 

31.8.2007 : COBRA Reykjavík

Sýningin COBRA Reykjavík opnar í Kunstcentret Silkeborg Bad 1. september 2007. >>>
 

29.8.2007 : Politiken fer til Íslands

Stór hluti sunnudagskálfs dagblaðsins Politiken 26. ágúst sl. er tileinkaður Íslandi. >>>
 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+45-33 18 10 59


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, danska, enska