Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Hús Jóns Sigurðssonar

Jonshus

Jónshús í Kaupmannahöfn hefur verið í eigu Alþingis frá árinu 1967 er Carl Sæmundsen stórkaupmaður gaf það í minningu Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Þau hjón bjuggu í húsinu frá árinu 1852 allt til dauðadags, 1879. Húsið er við Øster Voldgade 12.

Árið 1970 hófst rekstur í húsinu. Þar er nú félagsheimili Íslendinga í Kaupmannahöfn, minningarsafn um Jón Sigurðsson og Ingibjörgu og bókasafn. Einnig hafa Stúdentafélagið, Íslendingafélagið, íslenski söfnuðurinn og sendiráðspresturinn aðstöðu í húsinu.