Sendiráð Íslands - Berlín

Rauchstraße 1, 10787 Berlin - Tel.: +49-(0)30 -50 50 40 00



Umdæmislönd

Umdæmislönd

Viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Berlín sinnir viðskiptaþjónustu í Þýskalandi, Króatíu og Búlgaríu.

Ruth Bobrich
Tel.: (49) 30 5050 4150
E-mail: rkb@mfa.is


Tvíhliða samskipti

Pólland

Pólland gekk í Evrópusambandið 1. maí 2004 og er nú sjötta fjölmennasta land sambandsins með rúmlega 38 milljónir íbúa. Aðildarviðræðum lauk formlega í árslok 2002 og ríkti samkvæmt skoðanakönnunum almenn sátt meðal almennings með endanlegar niðurstöður aðildarsamninganna. Erfiðustu samningamálin lutu að helsta hagsmunamáli Póllands þ.e. styrkjum til landbúnaðar, en Pólland er nú stærsta landbúnaðarland sambandsins. Fríverslunarsamningur EFTA og Póllands gekk í gildi 1. september 1994. Eftir aðlögunartíma komst á full fríverslun með sjávarafurðir í viðskiptum við Pólland. Við inngöngu Póllands í ESB og niðurfellingu fríverslunarsamningsins var mikilvægt að tryggja að íslensk fyrirtæki nytu ekki lakari kjara en áður. Með aðild Póllands að EES samningnum er þess að vænta að viðskipti og fjárfestingar milli landanna eflist ennfrekar.

Tvíhliða viðskipti milli landanna eru fremur lítil, en þau eru þó í jafnvægi. Af heildarutanríkisviðskiptum Íslands er hlutur Póllands aðeins 1%. Viðskipti ríkjanna miðuðust árum saman við smíðar og lagfæringar fiskiskipa í Póllandi og útflutning Íslendinga á kísiljárni, frystri síld, þorskalýsi og öðru fiskmeti. Í dag er pólski markaðurinn, með rúmlega 38 millj. íbúa, einn af mikilvægustu framtíðarmörkuðum Íslands í Austur-Evrópu og sá mikilvægasti af hinum nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Útflutingur til Póllands hefur fimmfaldast síðan árið 2000. Árið 2004 var útflutningur þangað 2.394 millj (fob) í samanburði við 409.9 millj.(fob) árið 2000. Sjávarafurðir eru meginútflutningsafurðin eða 92% af heildarútflutningi þangað að verðmæti 2.208 millj. 2004, þar sem síldarflök eru einn mikilvægasti vöruflokkurinn. Vélar og tæki voru flutt út fyrir 56 millj., lýsi fyrir 50 millj. og gærur og skinn fyrir 15 millj.

Innflutingur frá Póllandi hefur  minnkað á síðustu árum. Árið 2004 var verðmæti innflutnings frá Póllandi 1.934 millj. (fob) en árið 2000 nam verðmætið 2.888 millj. (fob).

Fáir pólskir ferðamenn sóttu Ísland heim á árinu en margir Pólverjar ferðast árlega milli landanna í atvinnuskyni. Um 2000 Pólverjar búa á Íslandi. Þátttaka íslenskra fyrirtækja í vörusýningum í Póllandi hefur einnig verið nokkur. Af athyglisverðum vörusýningum á þessu ári í Póllandi má nefna eftirfarandi:

MEAT Expo, Gdansk, 19. - 21. maí 2005

PLASTPOL, Kielce, 31. maí-3. júní 2005

POLFISH, Gdansk, 7.-9. júní 2005

POLAGRA-Food, Poznan, 20. - 23. september 2005

TOUR & TRAVEL, Warsaw, 22. - 24. september 2005

 

Tenglar

Króatía

http://www.hr

Government

Ministry of Foreign Affairs

Ministry of Economy, Labour, Entrepreneurship

Ministry of Finance

Ministry of the Sea, Tourism, Transport, Communication

Ministry for European Integration

Chamber of Commerce

Central Bureau of Statistics

Croatian Privatization Fund

Croatian National Tourism Board  

 

Pólland

www.poland.pl

www.poland.gov.pl

Ministry of Foreign Affairs

Ministry of Economy and Labour

Ministry of Agriculture

Ministry of Finance

Ministry of the Treasury

General Veterinary Inspectorate

National Bank of Poland  

Polish Information and Foreign Investment Agency

Central Statistical Office

Customs Service

Polish Agency for Enterprise Development 

Polish Chamber of Commerce

Warsaw Stock Exchange

Sea Fisheries Institute in Gdynia

Polish Association of Fish Processors

Polish-Scandinavian Chamber of Commerce

Friendship Association

Iceland Information Website 



 

 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+49 (0) 30 50 50 43 00


Opnunartími:

Mán.-fös.:
9:00-16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska, danska, norska.