Þjónusta
Þjónusta
Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins er starfrækt í öllum sendiráðum Íslands til að efla samkeppnisstöðu og árangur íslenskra fyrirtækja í útrás. Þar er veitt þjónusta á borð við markaðsathuganir og leit að hugsanlegum samstarfsaðilum. Sendiráðin geta einnig aðstoðað við að koma á fundum og tengslum við mikilvæga viðskiptavini.
-
Bæklingur um ráðgjafaþjónustu (PDF, 655 Kb)
Fyrir hverja?
Fyrir íslenska útflytjendur sem eru búnir að taka stefnu á tiltekna markaði og vilja nýta veru viðskiptafulltrúanna á mörkuðum og þekkingu á staðháttum til að auka árangur í útflutningi.
Hvað gerir viðskiptafulltrúinn?
Viðskiptafulltrúar VUR starfa innan sendiráða Íslands og hafa greiðan aðgang að tengslaneti sendiráðanna. Viðskiptafulltrúinn vinnur fjölbreytt markaðstengd verkefni sem eru sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins. Verkefnin eru skilgreind í fyrirfram gerðum verksamningum. Viðskiptafulltrúarnir koma heim a.m.k. einu sinni á ári til að kynna sér starfsemi íslenskra fyrirtækja með heimsóknum og opnum viðtalstímum hjá Útflutningsráði.
Hvert er verksvið viðskiptafulltrúans?
Viðskiptafulltrúinn innir af hendi markaðsrannsóknir, leitar að umboðsmönnum og samstarfsaðilum, kemur á viðskiptasamböndum og aðstoðar við gerð kynningarefnis fyrir markaðssvæðið. Hann auðveldar einnig aðgang að stjórnvöldum erlendis og opnar dyr að stærri viðskiptaaðilum.
Verksamningar
Viðskiptaþjónustan í Berlín veitir fjölbreytta þjónustu og má sem dæmi nefna eftirfarandi:
-
Viðskiptavakt
-
Markaðskönnun
-
Leit að umboðsaðilum
-
Skipulagning viðskiptaheimsókna
-
Aðstoð við skipulagningu kynninga og ráðstefna
-
VUR á vettvangi – viðskiptafulltrúi fylgir fyrirtækjum á fund erlendra aðila
-
Viðskiptafulltrúi í Varsjá veitir þjónustu í Póllandi
Umfang:
Lengd verkefna er eins breytileg og þau eru mörg, allt frá nokkrum klukkustundum til árs eða meira í sérstökum tilvikum. Þjónusta viðskiptafulltrúa kostar kr. 4.000 á klst.
Nánari upplýsingar um ráðgjafaþjónustuna veita:
Ruth Bobrich, rkb@mfa.is og
Rafal Bernatowski, rafal@mfa.is (Pólland)
Svanhvít Aðalsteinsdóttir, svanhvit@utflutningsrad.is


