Íslendingar í Þýskalandi
Yfirlit
Sendiráð Íslands í Berlín leggur lið þeim Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndunum, námsmönnum og ferðamönnum.
Aðstoð sendiráðsins getur verið með ýmsum hætti. Algengast er að fólk leiti til sendiráðsins vegna útgáfu neyðarvegabréfa, ökuskírteina og ýmissa vottorða.
Íslendingar búsettir í umdæmislöndunum eru kvattir til að skrá sig á póstlista með því að senda sendiráðinu upplýsingar um nafn, heimilisfang og netfang.
Almennar upplýsingar
Upplýsingar um búsetu og atvinnu í Þýskalandi er að finna á eftirfarandi heimasíðum á þýsku og á ensku:
Leben und Arbeiten in Deutschland
Íslendingafélög
Félag Íslendinga í Berlin, FÍBer (www.island-berlin.de)
Samband Íslendinga í München og nágreni, SÍMON (http://simon.askja.org / simon@askja.org)
Félag Íslendinga í Hamborg og nágrenni (magneajons@hotmail.com)
Ekkert Íslendingafélag er starfrækt í Köln eins og er, en hægt er að hafa samband við Dr. Sverrir Schopka (Schopka-IWL@t-online.de)
Íslendingavinafélög
Deutsch-Isländische Gesellschaft e.V., Köln (www.islandgesellschaft.de)
Verein Partnerschaft mit Hafnarfjörður e.V. Cuxhaven
Umsóknir um ökuskírteini
Íslenskir ferðamenn geta notað íslensku ökuskírteinin sín erlendis. Samt sem áður er þeim ráðlagt sem hafa eldri gerð ökuskírteina (gefin út fyrir 15. ágúst 1997) að endurnýja ökuskírteinið áður en lagt er af stað.
Ef haldið er til lengri dvalar er ráðlagt að leggja íslenska ökuskírteinið inn hjá yfirvöldum í skiptum fyrir ökuskírteini sem gefið er út í dvalarlandinu án þess að taka próf eða staðfesta kunnáttu á nokkurn hátt.
Aðeins er hægt að sækja um íslensk ökuskírteini í eigin persónu hjá Sendiráði Íslands í Berlín.
Upplýsingar varðandi lög um tvöfaldan ríkisborgararétt
Skráning og dvalarleyfi
Íslendingar sem ætla að dvelja til lengri tíma í Þýskalandi þurfa ekki að sækja um sérstakt dvalarleyfi en þurfa að skrá sig hjá “Meldebehörde” í sínu hverfi þegar þeir hafa fundið íbúð.
Nám og starfsmenntun
Upplýsingar um nám í Þýskalandi á háskólastigi er að finna á eftirfarandi heimasíðu www.daad.de.
Upplýsingar um mat og viðurkenningu á námi er að finna á heimsasíðu menntamálaráðuneytisins.
Upplýsingar um fjármögnun náms í Þýskalandi er að finna á eftirfarandi heimasíðu:
Atvinnuleit í Þýskalandi
Íslendingar þurfa ekki sérstakt atvinnuleyfi til að stunda vinnu í Þýskalandi. Hægt er að nálgast upplýsingar um atvinnumöguleika á eftirfarandi heimasíðu:
Ræðismenn í Þýskalandi
Ræðismenn eru fulltrúar sendiráðsins í umdæmum þess. Íslenskir ríkisborgarar geta kosið í alþingis- og sveitastjórnarkostningum hjá ræðismönnum.
Tryggingar
Upplýsingar um tryggingar er að finna á vef Tryggingarstofnunar ríkisins.


