Botschaft der Republik Island - Berlin

Rauchstraße 1, 10787 Berlin - Tel.: +49-(0)30 -50 50 40 00



Nachrichten und Veranstaltungen


Nachrichten und Veranstaltungen

Gunnhildur Hauksdóttir, myndlistarkona, tekur þátt í myndbands-og gjörninga sýningu í Berlín

Alþjóðleg sýning í New York-Rio-Tokyo galleríinu

12.10.2006

Gunnhildur Haukdóttir, myndlistarmaður, mun verða með sýningu undir nafninu Flood Lit Wendy House í Berlín á næstu dögum ásamt þeim; Andrew Kerton UK), Shana Moulton (USA), Jen Liu (USA), Jo Robertson (UK), Lucy Stein (UK), Jessica Wiesner (UK). Gunnhildur er búsett í Berlín og hefur verið ötul við sýningarhald hér sem og á Íslandi .

Opnunin verður föstudaginn 13. október kl. 19 í NewYork-Rio-Tokyo á Eberswalder Strasse 4. Sýningin verður til 28.október.

"Flood Lit Wendy House" er sýning sjö alþjóðlegra myndbands-og gjörninga listamanna. New York Rio Tokyo galleríinu verður að þessu sinni breytt í svæði fyrir gjörninga og innsetningar sem fara fram á mismunandi stöðum og tímum ásamt því að umræða fer fram samhliða sýningunni á tilsettum tímum.Uppsetning Gunnhildar leitast eftir því að kanna skilin milli þesspersónulega og opinbera. Þetta sýnir hún með persónulegumsímtölum við ókunnugt í fjöltæknilegri innsetningu í galleríinu.



 

 


Leturstærð: