Botschaft der Republik Island - Berlin

Rauchstraße 1, 10787 Berlin - Tel.: +49-(0)30 -50 50 40 00



Nachrichten und Veranstaltungen


Nachrichten und Veranstaltungen

Karlakórinn Þrestir í Þýskalandi

1.9.2006

Karlakórinn Þrestir úr Hafnarfirði heldur tónleika í Troisdorf, Nordrhein-Westfalen í kvöld. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð þeirra um Þýskaland. Tónleikarnir verða í kirkju Sankt Hippolytus, Hippolytusstraße (Tdf.-Mitte) og hefjast klukkan 19.30. Þess má einnig geta að karlakórinn er elsti starfandi karlakór landsins, stofnaður af Friðriki Bjarnasyni í febrúar 1912.

Þrestir hafa gefið út þrjár hljómplötur, 1975 45sn. 1977 33 sn. og 2002 CD plötuna "Sveinar kátir syngið" þar sem nafn plötunnar er tilvitnun í eitt laga stofnanda kórsins Friðriks Bjarnasonar.

Upptökur eru ennfremur til af tónleikum Þrasta auk myndbanda og hljóðupptaka af söng kórsins í sjónvarpssal og á tónleikum með öðrum. Sýnishorn eru hér á vefnum undir Hljóðdæmi

Upplýsingar um Þresti má finna á heimasíðu þeirra www.threstir.is



 

 


Leturstærð: