Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu

16 allée Spach, FR-67000 Strasbourg - Sími +33 (0) 3 88 24 76 90


Tungumál


Þingmanna- samkoma

Þingmannasamkoma Evrópuráðsins

Þing Evrópuráðsins, sem kom fyrst saman þann 10. ágúst 1949, er fyrsta evrópska þingið sem stofnað hefur verið í álfunni. Þingið sækja sendinefndir 47 þjóðþinga og telst það því víðtækasta þing Evrópu. Þingið setur sér dagskrá og þar er fjallað um ýmis málefni líðandi stundar, þ.á.m. þann vanda sem steðjar að samfélaginu og alþjóðamál. Þingið er í ráðgefandi hlutverki innan Evrópuráðsins. Í sendinefndum aðildarríkjanna eru tveir til átján fulltrúar í hlutfalli við íbúafjölda í viðkomandi ríki. Stefnt skal að því að helstu stjórnmálaflokkar hvers lands eigi fulltrúa á þinginu. Ísland á þar þrjá aðalfulltrúa og þrjá varamenn:

Guðfinna S. Bjarnadóttir, formaður
Ellert B. Schram, varaformaður
Steingrímur J. Sigfússon
Birgir Ármannsson, varamaður
Árni Páll Árnason, varamaður
Kristinn H. Gunnarsson, varamaður

Þingið kemur saman fullskipað á þriggja mánaða fresti, viku í senn, í þingsal Evrópuhallarinnar í Strassborg.



Council of Europe: Parliamentary Assembly

 

 

Leturstærð: