Ráðherranefndin
Ráðherranefnd Evrópuráðsins
Ráðherranefndin fer með ákvörðunarvald innan Evrópuráðsins. Í henni sitja utanríkisráðherrar aðildarríkjanna 47 eða fastafulltrúar þeirra í Strassborg. Fastafulltrúar funda nokkrum sinnum í viku en einu sinni á ári koma ráðherrar aðildarríkjanna saman í ráðherranefndinni. Ráðherranefndin er í senn stjórnunarstofnun, þar sem hægt er að ræða á jafnréttisgrundvelli viðhorf einstakra þjóða til þeirra vandamála sem blasa við í evrópsku samfélagi, og sameiginlegur umræðuvettvangur, þar sem viðbrögðum við slíkum vandamálum er komið á framfæri hvaðanæva að úr Evrópu. Ráðherranefndin stendur ásamt þinginu vörð um grundvallargildi Evrópuráðsins og fylgist með því að aðildarríkin standi við skuldbindingar sínar.
Utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, er fulltrúi Íslands í ráðherranefndinni. Stefán Lárus Stefánsson sendiherra er staðgengill ráðherra í nefndinni. Hann hefur verið fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu síðan 1. september 2006.






