Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu

16 allée Spach, FR-67000 Strasbourg - Sími +33 (0) 3 88 24 76 90


Tungumál


Mannréttinda- dómstóll

Mannréttindadómstóllinn

Einn merkasti árangur af starfi Evrópuráðsins er Mannréttindasáttmáli Evrópu sem öðlaðist gildi 1953. Í sáttmálanum er mælt fyrir um óafsalanlegt frelsi og réttindi allra einstaklinga og skyldu ríkjanna til að tryggja öllum innan lögsögu sinnar þessi réttindi. Árið 1998 tók gildi ný bókun við Mannréttindasáttmálann þar sem kveðið er á um sameinaðan fastan dómstól sem leysti af hólmi eldra fyrirkomulag sáttmálans sem saman stóð af Mannréttindanefnd Evrópu og dómstól. Málafjöldi fyrir dómstólnum hefur aukist gríðarlega síðustu ár, bæði vegna aukinnar vitundar almennings og fjölgun aðildarríkja Evrópuráðsins. Í dag bíða yfir 90.000 mál afgreiðslu dómsins.

Ísland fullgilti Mannréttindasáttmála Evrópu þann 29. júní 1953 og viðurkenndi þar með rétt einstaklinga til þess að fara með mál fyrir dómstólinn 29. mars 1955. Dómari Íslands við Mannréttindadómstólinn er Davíð Þór Björgvinsson (síðan 1. nóvember 2004).

 

 

Leturstærð: