Ísland og Evrópuráðið
Evrópuráðið var stofnað 5. maí árið 1949 í kjölfar hörmunga síðari heimstyrjaldarinnar. Ísland gerðist aðili að ráðinu 7. mars 1950. Ísland hefur allt fá upphafi tekið virkan þátt í starfsemi Evrópuráðsins og Fastanefnd Íslands við Evrópuráðið var stofnuð í Strassborg 1997. Á tímabilinu 7. maí – 4. nóvember 1999 gegndi Ísland formennsku í ráðherranefnd Evrópuráðsins sem var kærkomið tækifæri til að árétta stuðning okkar við varðveislu mannréttinda og lýðræðisþróun í álfunni. Íslensk fagráðuneyti taka virkan þátt í samstarfi ríkja innan Evrópuráðsins og einnig ber að nefnda öfluga þátttöku íslenskra þingmanna í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins.






