Ólympíuleikarnir
Ólympíuleikar fatlaðra 2008 í Kína
Almennar upplýsingar
Ólympíuleikar fatlaðra hefjast þann 6. september og þeim lýkur þann 17. september.
- Opinber heimasíða Ólympíuleika fatlaðra 2008.
- Dagskrá Ólympíuleika fatlaðra er að finna hér.
- Íslensku keppendurnir og keppnisdagskrá þeirra.
Hvernig er hægt að kaupa miða?
Miða er hægt að nálgast hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Ekki er mælt með að koma til Kína og ætla sér á Ólympíuleikana án þess að vera búinn að tryggja sér miða fyrirfram. Einnig er hægt að nálgast miða í gegnum opinbera heimasíðu Ólympíuleika fatlaðra (sjá að ofan).
Hvað kosta miðar á Ólympíuleikana?
Verðið er mjög misjafnt og fer það eftir íþróttagrein og staðsetningu sæta.
Hvaða íslensku íþróttamenn munu keppa á leikunum?
Fimm íslenskir keppendur hafa tryggt sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í september. Sjá lista að ofan.
Hvernig er best að panta hótel í Beijing á meðan á leikunum stendur?
Heimasíður sem bjóða uppá hótelbókun má nálgast hér:
Er hægt að leigja fullbúnar einkaíbúðir í Beijing?
Sendiráðinu er kunnugt um framtak þar sem hægt er að leigja fullbúnar einkaíbúðir í Beijing á meðan á ÓL stendur.
Í gegnun Beijing Olympic Apartment Rental er hægt að nálgast góðar leiguíbúðir í Beijing. Að þessu framtaki standa meðal annars íslenskir aðilar. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu þeirra Beijing Olympic Apartment Rental.
Einnig er hægt að hafa beint samband við Þorgerði Þórðardottur sem á hlutdeild að verkefninu:
- Netfang: t.thordarsen@gmail.com og gsm: (+86) 139 1057 5053
Annar mögulegur kostur er Homestay in Beijing sem býður einnig uppá leiguíbúðir í Beijing á meðan á leikunum stendur. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Homestay Beijing 2008.
Neyðarvakt ESB
Evrópusambandið mun halda úti upplýsingamiðstöðvum til sinna ríkisborgara. Íslenskir ríkisborgarar njóta einnig góðs af þeirra þjónustu og geta fengið upplýsingar og ýmsa aðstoð ef þörf er á. Sambandið mun setja upp uppplýsingabása á flugvellinum i Beijing og öðrum stærri borgum Kína. Gestir eru hvattir til að líta þar við. Að frumkvæði ESB var útbúinn sérstakur leiðbeiningabæklingur fyrir þá sem mæta á ÓL.
Hér er hægt að nálgast rafræna útgáfu af leiðbeiningabækling þeirra.
Þarf vegabréfaáritun til að komast til Kína?
Nauðsynlegt er að sækja um vegabréfaáritun til að heimilt sé að ferðast til meginlands Kína. Það er hægt að gera í sendiráði Kína á Íslandi. Best er að sækja um með nokkrum fyrirvara enda getur umsóknarferlið tekið þó nokkra daga. Allar upplýsingar um hvað þarf að fylgja umsókninni er að finna á heimasiðu kínverska sendiráðsins.
Vegabréfadeild kínverska sendiráðsins er opin alla virka daga frá kl. 9:00- 12:00.
Er sjúkratrygging nauðsynleg fyrir ferð til Kína?
Sendiráð Íslands beinir því til íslenskra ríkisborgara að sjúkratryggja sig áður en lagt er land undir fót. Dvöl á vestrænum spítölum í Kína getur verið mjög kostnaðarsöm.
Túlkar fyrir gestkomandi Íslendinga
Sé óskað eftir að fá aðstoð einstaka daga í Beijing er hægt að hafa samband við kínverskumælandi Íslendinga sem hafa ákveðið að bjóða uppá túlkaþjónustu sé áhugi fyrir því. Þókunun er samkomulagsatriði. Þau hafa bæði numið kínversku í Beijing og verið búsett í borginni í nokkur ár.
Hægt er að hafa samband við annaðhvort:
Erlu Karen erla.magnusdottir@gmail.com
Þór thormatt@gmail.com
Þarf að fara í bólusetningu áður en haldið er til Kína?
Best er að ráðfæra sig við heimilislækni eða fara á næstu heilsugæslustöð til að fá ráðleggingar.
Er hægt að nálgast vestræn lyf í Kína?
Sendiráðið mælir með að öll lyfseðilsskyld lyf séu tekin með að heiman. Ekki er víst að hægt sé að nálgast nákvæmlega sömu lyf í Kína. Í flestum stórborgum Kína er hægt að fara á vestræna spítala en ekki er öruggt að þeir eigi sambærileg lyf.
Sendiráðið mælir einnig með að ferðamenn taki algeng ólyfseðilsskyld lyf með sér.
Hvernig er best að ferðast innanbæjar í Beijing?
Staðið hefur verið í umtalsverðum umbótum á samgöngukerfinu undanfarin ár. Hægt er að nýta neðanjarðarlestarkerfið, strætó og leigubíla til að komast að Ólympíusvæðinu. Neðanjarðarlestarkerfið hefur verið stækkað umtalsvert og ferðir eru tíðar.
Einnig er mikið er af leigubílum og þeir eru tiltölulega ódýrir en grunngjaldið er 10 RMB. Ekki tíðkast að gefa þjórfé og ekki borgar sig að reyna að semja um verðið fyrirfram. Best er að láta mælirinn gilda.
Hér má finna lítinn leigubíla-leiðarvísi um Beijing en hann er hægt að nota til að komast á milli helstu staða. Bílstjórarnir geta flestir lesið kínverska letrið og farið á þann stað sem óskað er eftir.
Ekki er leyfilegt fyrir erlenda ríkisborgara að aka bifreið í Beijing án þess að þeyta próf og fá útgefið sérstakt ökuskirteini.
Hvernig er veðrið í Beijing í september?
September er ekki heitasti mánuður ársins í Beijing en veður að jafnaði ágætt. Hinsvegar má eiga von á votviðris dögum.
Er hægt að drekka kranavatn í Kína?
Einungis er hægt að drekka vatnið í krananum eftir að það hefur verið soðið. Hægt er að nálgast flöskuvatn í öllum matvöruverslunum.

