Nám í Kína
Nám í Kína
Yfirlit
Almennt um háskólanám
Íslendingar geta sótt um nám viđ kínverska háskóla án milligöngu íslenskra háskólastofnanna. Fjölmargir kínverskir háskólar bjođa uppá námsbrautir sérstaklega ćtlađar erlendum nemendum. Í ţeim tilfellum er kínversku kunnátta ekki alltaf skilyrđi fyrir inntöku.
Kínverskir háskólar bjóđa ţar ađ auki uppá fjölmarga áhugaverđa möguleika til kínverskunáms fyrir erlenda nemendur.
Hér má finna tengla og heimilisföng nokkurra helstu háskóla í Kína.
Námsmenn sem stunda nám viđ háskólastofnun á Íslandi en óska eftir skiptinámi í Kína er bent á ađ leita til námsráđgjafa viđkomandi menntastofnunar um frekari upplýsingar. Í mörgum tilfellum eru íslenskir háskólar í samstarfi viđ virta háskóla í Kína ţar sem gildandi eru samningar um nemendaskipti.
Hvađ varđar kínverskunám er oft taliđ ađ besti ađbúnađurinn sé í Beijing Language and Culture University eđa Peking University.
Best er ađ athuga hver skilyrđi eru fyrir inngöngu í hverjum skóla fyrir sig enda gera skólarnir mismunandi kröfur til verđandi nemenda.
Styrkir til náms
Kínversk stjórnvöld bjóđa reglulega styrki til handa Íslendingum sem hyggja á háskólanám í Kína. Íslenska menntamálaráđuneytiđ hefur séđ um ađ auglýsa ţessa styrki og veita umsóknum viđtöku.
Styrkirnir eru ekki bundnir viđ kínverskunám. Hins vegar er bent á ađ sumir háskólar í Kína krefjast töluverđrar fćrni í kínversku til ađ veita inngöngu. Bođiđ er upp á stađlađ stöđupróf í kínversku, "The Chinese Proficiency Test (Hanyu Shuiping Kaoshi, HSK)", til ađ kanna kínverskukunnáttu útlendinga.
Varđandi möguleika á skólavali geta styrkţegar vćntanlega haft nokkur áhrif ţar á, sérstaklega ef inntökuvottorđ frá viđkomandi skóla fylgir umsókn ţeirra.
Íslenskuskólinn á netinu
Starfsemi er ađ hefjast í Íslenskuskólanum á netinu. Íslenskuskólinn er skóli á netinu fyrir íslensk börn og foreldra ţeirra sem eru búsett erlendis. Í skólanum er áhersla lögđ á íslenskukennslu, en ađrar námsgreinar fléttast ađ einnig inn í námiđ.
Skráning í skólann er ókeypis og ţar kynnast nemendur öđrum krökkum á sama aldri sem jafnvel búa á sömu slóđum. Í skólanum er líka opinn verkefnabanki ţar sem nemendur frá sex ára aldri finna skemmtileg verkefni viđ hćfi, sem reyna á lestur, ritun og hlustun.
Núna stendur yfir skráning á vefnámskeiđ sem standa yfir í nokkrar vikur. Á námskeiđunum vinna nemendur margvísleg verkefni á ţeim hrađa sem ţeim hentar undir handleiđslu kennara.
Námskeiđsgjald er 8.000 ISK og er hćgt ađ greiđa ţađ inn á bankareikning í íslenskum netbanka eđa međ greiđslukorti á vef skólans. Ţar er einnig bođiđ upp á kaupa gjafabréf sem veita ađgang ađ námskeiđi, en ţađ er upplögđ gjöf til barna eđa barnabarna sem búsett eru erlendis. Starfsfólk Íslenskuskólans veita fúslega nánari upplýsingar varđandi námskeiđin.
islenskuskolinn@islenskuskolinn.is

