Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



IBF_ChinaYouthFoundatio_Embassy

Íslensk fyrirtæki í Kína styrkja fórnarlömb jarðskjálftans

Íslensk fyrirtæki í Kína hafa tekið höndum saman til að sýna fórnarlömbum jarðskjálftans í Sichuan-fylki stuðning.

11.7.2008

Forseti Íslands vék að því í samúðarkveðju sinni til kínversku þjóðarinnar á dögunum að íslenska þjóðin hefði langa reynslu af jarðskjálftum og að samúðarhugur Íslendinga væri með kínversku þjóðinni á þessum erfiðu tímum.

Til að sýna hug sinn í verki tóku fyrirtæki innan Icelandic Business Forum (IBF) í Kína höndum saman og styrkja fórnarlömb jarðskjálftans í Sichuan fylki sem átti sér stað þann 12. maí s.l. Jarðskjálftinn sem mældist á bilinu 7,8-8,0 á Richter olli gríðarlegum skemmdum og er talið að um 69.000 manns hafi látið lífið.

Að frumkvæði meðlima IBF og með aðstoð sendiráðs Íslands í Beijing var safnað rúmlega 5 milljónum ísk.kr til að byggja nýjan grunnskóla í Sichuan fylki þar sem jarðskjálftinn átti upptök sín.

China Youth Development Foundation hefur starfað með IBF og sendiráðinu að verkefninu en samstarfssamningur var undirritaður þann 2. júlí 2008.

Metið er að framlag íslensku fyrirtækjanna og sendiráðsins muni geta kostað stöndugan grunnskóla sem bera mun nafnið Binghua Hope Primary School. Bing er kínverska hljóðtáknið fyrir „ís“  og er táknrænt fyrir Ísland en Hua táknrænt fyrir Kína.

Það er von IBF og sendiráðsins að skólinn muni byggja á styrkum stoðum vináttu og samhugar.



 

 

Leturstærð: