Íslensk listakona heiðruð
Gerður Gunnarsdóttir listakona hlaut sérstaka viðurkenningu á úrslitakvöldi alþjóðlegrar höggmyndasamkeppni sem fram fór í Beijing 31. maí s.l.
Gerður Gunnarsdóttir listakona hlaut sérstaka viðurkenningu á úrslitakvöldi alþjóðlegrar höggmyndasamkeppni (e. 2008 Olympics Landscape Sculpture Design Contest) sem fram fór í Beijing 31. maí s.l.
Viðurkenninguna hlaut Gerður fyrir verkið „To the Olympics – in Peace and Harmony”.
Listamenn frá 90 löndum tóku þátt og sendu inn ríflega 2400 verk í keppnina. Af þeim voru síðan 290 verk valin á farandsýningu um Kína. Að henni lokinni fóru 110 verk á alþjóðlegu sýninguna „2008 Landscape Sculpture International Tour Exhibition” sem var m.a. sett upp í Lausanne, Gisborne, London, Los Angeles, Sacramento, Atlanta, Chicago og New York, Róm, Barcelona, Sydney og Tókyo.
29 verk af sýningunni verða stækkuð upp í ca. 3-5 metra og sett niður við Ólympíuleikvanginn í Beijing, en auk þeirra voru 50 önnur verk heiðruð sérstaklega. Verk Gerðar var þar í hópi. Sendiráðið óskar Gerði hjartanlega til hamingju með þennan stórglæsilega árangur.
Gerður hefur, umfram marga aðra listamenn, sett mark sitt á listalífið í Kína. Hún hefur dvalist í landinu við listiðkun og eru verk eftir hana m.a. í Changchun (Friður og vinátta), í Qingdao (Fiðluleikarinn, 2 verk) og í Baoding, vinarbæ Hafnarfjarðar (Stjórnandinn).
Áhugasömum er bent á heimasíðu Gerðar


