Íslensk tónlistarflóra gerð aðgengileg á veraldarvefnum
Iceland Music Export komið með nýja heimasíðu á www.icelandmusic.is
Iceland Music Export eða IMX sér um að kynna íslenska tónlist og koma íslenskum tónlistarmönnum á framfæri utan landssteinanna. Á heimasíðu þeirra er að finna fréttir um hvað er að gerast hverju sinni auk aðgengilegra upplýsinga um íslenskt tónlistarlíf.
Hægt er að nálgast nýja heimasíðu IMX hér.

