Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Ísland friðsamasta land veraldar

Ísland er friðsamasta land í heimi samkvæmt alþjóðlegum friðarstaðli.

23.5.2008

Samræmdur staðall yfir friðsemd ríkja var gerður að frumkvæði Economist Intelligence Unit og voru 140 ríki í úrtakinu.

Staðallinn byggir á mælingum á 24 mismunandi breytum sem ná bæði yfir innri og ytri aðstæður ríkja. Ríkin voru metin á grundvelli frammistöðu sinnar í t.d samskiptum við nágrannaríki sín, virðingu fyrir mannréttindum og átakastigi bæði innanlands og utan.

Utanríkisráðherra Íslands, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í tilefni útgáfunnar að ánægjulegt væri að staðallinn gæfi skýra mynd af þeim grundvallar gildum sem eru ríkjandi meðal smárra lýðræðisríkja. Utanríkisráðherra lagði einnig áherslu á þessi mikilvægu gildi væru drifkrafturinn í framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna.

Hér er hægt að sjá stöðu allra ríkja á listanum.



 

 

Leturstærð: