Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla er hafin
Kosið verður til nýrrar sveitastjórnar í sameinuðum Aðaldælahrepp og Þingeyjarsveitar.
Þann 15. maí 2008 var staðfest sameining Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveita í eitt sveitafélag. Mun sameining sveitafélaganna taka formlega gildi 12. júlí 2008.
Kosið verður til sveitastjórnar hins sameinaða sveitarfélags þann 28. júni n.k. en samhliða verður einnig kosið um nafn hins nýja sveitarfélags. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla er hafin og er unnt að greiða atkvæði utan kjörfundar í öllum sendiráðum sem og hjá ræðismönnum Íslands.

