Afhending trúnaðarbréfs í Seoul
Gunnar Snorri Gunnarsson afhenti 13.þ.m. Lee Myung-Bak forseta Suður-Kóreu trúnaðarbréf sitt
Gunnar Snorri Gunnarsson afhenti 13.þ.m. Lee Myung-Bak forseta Suður-Kóreu trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Suður-Kóreu með aðsetur í Beijing. Einnig átti hann fundi með vara-utanríkisráðherra og embættismönnum um samskipti landanna, rekstur nýlegs fríverslunarsamnings, tvísköttunarsamning og framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna,
Þann 15. þ.m. undirritaði sendiherra tvísköttunarsamning milli Íslands og Suður-Kóreu.
Íslenski leikhópurinn Vesturport er nú á sýningarferðalagi í Suður-Kóreu og sýnir m.a. Hamskiptin eftir Kafka í Seoul á föstudag.

