Afhending trúnaðarbréfs í Laos
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, afhenti 6.þ.m. Choummaly Xayasone, forseta Laos , trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Laos með aðsetur í Beijing.
Laos hefur á undanförnum árum lagt áherslu á nýtingu fallvatna sinna og selur nú nágrannaríkjum sínum rafmagn. Jarðhiti sem er til staðar í landinu hefur hins vegar lítt verið kannaður.
Sýndi forseti áhuga á að efla tengsl orkumálasérfræðinga landanna tveggja. Forseti tók jafnframt fram að ástæða væri til þess fyrir ríki sem hefðu verið nýlendur að standa saman á alþjóðavettvangi.
Í því samhengi vildi hann taka til vinsamlegrar athugunar stuðning við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.


