Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Ísland Rokkar í Beijing

2.5.2008

Íslensku hljómsveitirnar: Vicky Pallard og Hellvar eru staddar þessa dagana í Peking, þar sem þær munu koma fram á tónleikum víðsvegar um borgina og kynna það sem er að gerast í íslensku tónlistarlífi. Aðal tónleikar hljómsveitarinnar voru haldnir á tónlistarhátíðinni Midi Music School sem er ein af aðal hátíðum hér í Kína fyrir ungar og upprennandi hljómsveitir.

Meðlimir Vicky Pallard eru Eygló Sigurðardóttir, Ástrós Ósk Jónsdóttir, Orri Guðmundsson, Eyrún Guðmundsdóttir og Karlotta Laufey Halldórsdóttir; meðlimir Hellvar eru Ragnheiður Eiríksdóttir, Elvar Geir Sævarsson, Sverrir Ásmundsson og Alexandra Ósk Sigurðardóttir. Umboðsmaður hljómsveitanna er Ásgeir Andri Guðmundsson.

 

Dagskrá Vicky Pallard og Hellvar í Beijing

 

  • Midi Music School at 18:00 May 2
  • Get Lucky Bar at 22:00 May 3
  • Mao Live Club at 22:00 May 4

 

 

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vefsíðunni:

http://midischool.com.cn.



 

 

Leturstærð: