Sendiráðið tekur þátt í ferðakynningu
Sendiráðið tók þátt í ferðamálaráðstefnunni „The Marketing Summit on Chinese and Overseas Exquisite Tourism Destinations 2008" sem fram fór í Beijing dagana 20. til 22. apríl s.l. Ráðstefnan er ein af stærri ferðaráðstefnum í Beijing og er sótt af fulltrúum ríflega 200 ferðaskrifstofa auk fjölda fjölmiðla.
Á ráðstefnunni kynnti Axel Nikulásson sendiráðunautur Ísland sem áfangastað kínverskra ferðamanna, en auk Íslands voru um 20 önnur ríki með kynningar. Samhliða ráðstefnunni var haldin vegleg ljósmyndasýning þar sem fjöldi ljósmynda frá Íslandi voru m.a. til sýnis.


